Í viku 45 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 285.817 eigin hluti að kaupverði 12.552.120 kr. eins og nánar er greint frá hér:
| Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
| 2.11.2026 | 12:05:41 | 11.108 | 43,20 | 479.866 |
| 5.11.2026 | 11:43:20 | 38.006 | 44,00 | 1.672.264 |
| 5.11.2026 | 14:47:30 | 161.994 | 44,00 | 7.127.736 |
| 5.11.2026 | 15:04:39 | 711 | 43,80 | 31.142 |
| 5.11.2026 | 15:07:52 | 68.493 | 43,80 | 2.999.993 |
| 5.11.2026 | 15:29:47 | 5.505 | 43,80 | 241.119 |
| 285.817 | 12.552.120 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 05.05.2026.
Sjóvá átti 9.872.577 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 10.158.394 eigin hluti eða sem nemur 0,87% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir Særún Sigurpálsdóttir í síma 858-7997 eða fjarfestar@sjova.is