Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 46 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 112.047 eigin hluti að kaupverði 4.932.918 kr. eins og nánar er greint frá hér:
| Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
| 9.11.2026 | 15:29:46 | 796 | 44,00 | 35.024 |
| 10.11.2026 | 14:12:06 | 14.252 | 44,20 | 629.938 |
| 13.11.2026 | 11:35:30 | 33.107 | 44,00 | 1.456.708 |
| 13.11.2026 | 13:44:42 | 44.576 | 44,00 | 1.961.344 |
| 13.11.2026 | 15:05:33 | 19.316 | 44,00 | 849.904 |
| 112.047 | 4.932.918 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 05.05.2026.
Sjóvá átti 10.158.394 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 5.979.262 eigin hluti eða sem nemur 0,51% af útgefnum hlutum í félaginu. Félagið afhendi 4.291.179 eigin hluti til starfsmanna í tengslum við kaupréttaráætlun í viku 46.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir Særún Sigurpálsdóttir í síma 858-7997 eða fjarfestar@sjova.is