Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík fyrir árið 2006 nam 5.616,9 m.kr. króna fyrir skatta samanborið við 1.392,6 m. kr. árið áður. Hagnaður eftir skatta nam 4.687,1 m. kr. samanborið við 1.150,2 m. kr. árið áður. Arðsemi eigin fjár var 124,5%. Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag " Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík árið 2006 nam 5.616,9 m.kr. króna fyrir skatta samanborið við 1.392,6 m. kr. árið 2005. " Hagnaður eftir skatta nam 4.687,1 m. kr. samanborið við 1.150,2 m. kr. árið 2005. " Arðsemi eigin fjár var 124,5%. " Vaxtatekjur Sparisjóðsins námu 4.240,5 m.kr. en það er 67,8% hækkun frá árinu 2005. " Vaxtagjöld hækkuðu einnig, eða um 117,8% og námu 3.595,5 m.kr. árið 2006 " Hreinar vaxtatekjur námu því 645 m.kr. samanborið við 875,8 m.kr. árið 2005 sem er lækkun um 26,4%. " Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðu fjármagns var 1,62% árið 2006 en 3,0% árið 2005. " Aðrar rekstrartekjur hækkuðu um 4.842,7 m. kr. og voru 6.613,6 m.kr. árið 2006. Munar þar mest um hækkun á gengishagnaði upp á 3.744,3 m.kr. og tekjur af hlutabréfum og öðrum eignarhlutum upp á 1.037,2 m. kr. " Önnur rekstrargjöld námu alls 1.257,9 m.kr. og jukust um 36% frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld jukust um 39,2%. Annar almennur rekstrarkostnaður jókst um 34,7%. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var 2,6% en var 2,9% árið 2005. " Kostnaðarhlutfall árið 2006 var 17,3% á móti 35% árið 2005. " Framlag í afskriftareikning útlána var 383,8 m.kr. en var 329,4 m.kr. árið 2005. Sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var framlagið 0,8% en var 1,04 árið 2005. " Afskriftareikningur útlána nam í árslok 1,87% af útlánum en var 2,06% árið áður. " Heildarinnlán í Sparisjóðnum ásamt lántöku námu í lok árins 2006 33.081,7 m.kr. og er aukningin 32,7% á milli ára. " Útlán Sparisjóðsins ásamt markaðsskuldabréfum námu 35.027,1 m.kr. í lok ársins 2006 og höfðu aukist um 9.410,1 m.kr. eða um 36,7%. " Í lok ársins var niðurstöðutala efnahagsreiknings 47.969,4 m.kr. og hafði hún hækkað um 16.192,1 m.kr. eða 51%. Eigið fé Sparisjóðsins í lok ársins 2006 nam 9.272 m.kr. og hefur eigið fé aukist um 5.508,7 m.kr. eða 146,4%. " Á árinu 2006 var stofnfé aukið um 500 m.kr að nafnvirði og var 1.100 m. kr í árslok sem svarar til 2.166,2 m. kr að uppreiknuðu nafnvirði. Þá var einnig samþykkt heimild til stjórnar að auka stofnfé allt að 700 m.kr að nafnvirði og hefur stjórn tekið ákvörðun um að nýta heimildina í mars - apríl 2007. " Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins samkvæmt CAD-reglum er 14,17% en var 12,42% á sama tíma árið áður. " Áætlanir fyrir árið 2007 gera ráð fyrir góðri afkomu en þó ekki eins góðri og árið 2006. " Í lok árins 2006 var stofnfé 1.100 milljónir að nafnvirði og voru stofnfjáraðilar 617 talsins. " Við gerð þessa ársreiknings er í meginatriðum fylgt sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður. " Frá og með 1. janúar 2007 mun Sparisjóðurinn í Keflavík gera reikningsskil í samræmi við IFRS. Sparisjóðurinn í Keflavík Lykiltölur úr rekstri Milljónir króna 2006 2005 Breyting 2004 2003 2002 REKSTUR: Vaxtatekjur................................................. 4.241 2.527 67,8% 1.905 1.827 1.795 Vaxtagjöld................................................... -3.596 -1.651 117,8% -1.163 -1.106 -1.041 Hreinar vaxtatekjur................................. 645 876 -26,4% 742 721 754 Aðrar rekstrartekjur..................................... Tekjur af hlutabréfum og öðrum eignarhl.. 1.257 220 470,3% 118 150 53 Þóknunartekjur....................................... 369 314 17,4% 296 273 256 Þóknunargjöld........................................ -81 -71 14,1% -70 -56 -47 Gengishagnaður (tap).............................. 5.041 1.296 289,0% 561 739 -12 Ýmsar rekstrartekjur............................... 27 11 145,5% 8 7 28 Samtals..................................................... 6.613 1.771 273,4% 913 1.113 278 Hreinar rekstrartekjur............................. 7.258 2.647 174,2% 1.655 1.834 1.032 Önnur rekstrargjöld...................................... Laun og launatengd gjöld......................... -629 -452 39,2% -413 -405 -364 Annar almennur rekstrarkostnaður........... -604 -448 34,8% -395 -372 -356 Afskriftir rekstrarfjármuna....................... -17 -20 -17,0% -17 -24 -31 Ýmis rekstrargjöld................................... -8 -5 60,0% -5 -4 -1 Samtals..................................................... -1.258 -925 36,0% -830 -805 -752 Framlag í afskriftarreikning útlána................. -384 -329 16,7% -316 -290 -139 Hagnaður fyrir skatta............................... 5.617 1.392 303,5% 509 738 141 Reiknaðir skattar......................................... -930 -242 284,2% -100 -134 -23 Hagnaður ársins....................................... 4.687 1.150 307,6% 409 604 118 Lykiltölur efnahagsreiknings Milljónir króna 2006 2005 Breyting 2004 2003 2002 EFNAHAGUR: Eignir Sjóður og kröfur á lánastofnanir.................... 1.560 1.402 11% 2.869 2.077 1.187 Útlán........................................................... 34.519 25.167 37% 20.705 16.234 15.438 Markaðsbréf og eignarhlutir í félögum............ 11.272 4.917 129% 2.447 1.401 1.874 Aðrar eignir................................................. 618 291 112% 289 280 411 Eignir samtals........................................... 47.969 31.777 51% 26.311 19.992 18.910 Skuldir og eigið fé : Skuldir við lánastofnanir............................... 1.244 386 222% 3.183 838 1.493 Innlán ........................................................ 19.464 14.288 36% 11.847 10.841 9.482 Lántaka....................................................... 13.617 10.636 28% 6.977 4.758 4.876 Aðrar skuldir og skuldbindingar..................... 323 185 75% 197 188 161 Reiknaðar skuldbindingar.............................. 2.477 1.123 121% 841 688 495 Víkjandi lán................................................. 1.572 1.395 13% 583 320 590 Skuldir samtals......................................... 38.697 28.013 38% 23.629 17.633 17.097 Eigið fé....................................................... 9.272 3.765 146% 2.682 2.359 1.813 Skuldir og eigið fé samtals...................... 47.969 31.778 51% 26.311 19.992 18.910 Arðsemi eiginfjár......................................... 124,5% 42,9% 17,30% 33,3% 6,75% Meðalfjöldi starfsmanna................................ 83,9 75,7 74,4 72,4 73,5 Eiginfjárhlutfall............................................. 14,17% 12,42% 12,56% 14,95% 10,54% Að sögn Geirmundar Kristinssonar sparisjóðsstjóra er afkoma ársins 2006 sú besta í sögu sjóðsins. Markaðsaðstæður hafa verið sparisjóðnum afar hagstæðar á síðastliðnu ári sem sést best í aukningu gengishagnaðar og tekjum af hlutabréfum og öðrum eignarhlutum upp á samtals 4,7 milljarða kr. á milli ára. Starfsemi Sparisjóðsins hefur styrkst mikið og tekjustoðum fjölgað. Viðskiptavinum fjölgar óðum og Sparisjóðurinn kappkostar að bjóða upp á fjölbreytt og gott vöruúrval fyrir viðskiptavini sína. Geirmundur segist vera bjartsýnn á framtíð Sparisjóðsins í Keflavík og býst við góðri afkomu árið 2006. Í mars 2006 keypti Sparisjóðurinn í Keflavík rekstur og eignir útibús Landsbankas í Sandgerði. Eignir og skuldir voru yfirteknar við kaupin og eru hluti af ársreikningi 2006. Í kaupunum var samningur um póstafgreiðslu sem Landsbankinn og Íslandspóstur höfðu verið aðilar að. Með þessu lokaði Sparisjóðurinn í Keflavík hringnum í afgreiðsluneti sínu á Suðurnesjum. Þá var einnig samþykktur samruni á Sparisjóðnum í Keflavík og Sparisjóði Ólafsvíkur. Markmiðið með sameiningunni er að efla starfsemi sparisjóðanna á starfssvæðum sínum og sækja fram á nýjum vettvangi. Með sameiningunni á sameinaður sparisjóður auðveldara með að mæta kröfum tímans um alhliða og hagkvæma fjármálaþjónustu við einstaklinga og fyrirtæki. Rekstur og efnahagur Sparisjóðs Ólafsvíkur er hluti af ársreikningi Sparisjóðsins í Keflavík 2006. Sparisjóðurinn rekur sjö afgreiðslur sem starfræktar eru í Keflavík, Njarðvík, Garði, Grindavík, Vogum, Sandgerði og Ólafsvík. Höfuðstöðvar Sparisjóðsins eru í Keflavík og þar er Viðskiptastofa SPKEF einnig til húsa. Meðalfjöldi starfsmanna árið 2006 var 83,88 sem er aukning um 8,22 stöðugildi frá því árinu áður. Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík verður haldinn föstudaginn 16. mars n.k. Stjórn sjóðsins leggur til að greiddar verði kr. 750 m. kr. í arð. Auk þess sem nýttar verði heimildir laga um endurmat og viðbótarendurmat upp á 5%. Nánari upplýsingar veitir Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri í síma 421-6605 eða mailto:geirmundur@spkef.is.
Sparisjóðurinn í Keflavík - Ársuppgjör 2006
| Source: Sparisjóðurinn í Keflavík