2006 Tölur í milljónum króna 2006 2005 2004 2003 Hreinar rekstrartekjur 501 501 2.453 125 Rekstrargjöld 145 174 82 65 Hagn. fyrir skatta 356 327 2.371 60 Reiknaðir skattar 69 64 412 14 Hagnaður af reglulegri starfsemi 287 263 1.959 46 Önnur gjöld 0 0 0 0 Hagnaður tímabilsins 287 263 1.959 46 31.12.2006 31.12.2005 31.12.2004 31.12.2003 Heildareignir 5.410 5.101 4.813 2.514 Skuldir og skuldbindingar 901 840 775 435 Eigið fé 4.510 4.261 4.038 2.079 Eiginfjárhlutfall 84% 84% 84% 83% Stjórn KEA svf. hefur á fundi sínum 8. febrúar 2007 fjallað um og samþykkt ársreikning félagsins fyrir árið 2006 en hann er samstæðureikningur KEA svf. og Hildings ehf. Hagnaður varð af rekstri félagsins á tímabilinu og nam hann 287 millj. kr. að teknu tilliti til reiknaðra skatta. Heildareignir félagsins nema 5.410 millj. kr. og skuldir og skuldbindingar 901 millj. kr. Þar af tekjuskattsskuldbinding að fjárhæð 430 millj.kr. Bókfært eigið fé er því 4.510 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 84%. Á árinu keypti félagið umtalsverða eignarhluti í Sandblæstri og málmhúðun og var einn stofnenda SAGA Capital fjárfestingarbanka. Auk þess var fjárfest í nokkrum minni verkefnum á árinu. Á árinu sameinaðist dótturfélagið Upphaf ehf. við Tækifæri hf. undir nafni og merkjum þess síðarnefnda en Tækifæri er fjárfestingarfélag sem einbeitir sér að fjárfestingum í nýsköpunar- og umbreytingarverkefnum. Eignarhlutur KEA í Tækifæri er 34% KEA starfar sem fjárfestingarfélag sem vinnur í þágu eigenda sinna að eflingu atvinnulífs og búsetuskilyrða á starfssvæði sínu. Á aðalfundi félagsins í maí var ákveðið að breyta nafni félagsins í KEA svf. en auk þess var ákveðið að greiða eigendum félagsins um 40 millj.kr. arð. Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA telur uppgjörið viðunandi m.t.t. aðstæðna á fjármála- og fjármagnsmörkuðum og þeirrar fjárfestingastefnu sem félagið fylgir. Mest af eignum félagsins er nú bundið í eignaflokkum sem gefa fastar tekjur s.s. á peningamarkaði. Síðasta ár einkenndist af umróti og óróa á íslenskum fjármálamarkaði það ástand hafði mikil áhrif á veltu og umsvif fjárfestingaverkefna. Stærri fjárfestingaverkefni félagsins ganga vel og undirliggjandi rekstur í samræmi við áætlanir. Nánari upplýsingar veitir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri, í síma 460 3400.
KEA - Ársuppgjör 2006
| Source: KEA svf.