Viðskiptatíma í Kauphöllinni breytt 26. mars - Lokunartími verður sá sami og í kauphöllunum í Stokkhólmi og Helsinki Kauphöllin hefur ákveðið að frá og með 26. mars nk. verði mörkuðum hennar lokað á sama tíma og hlutabréfamörkuðunum í Stokkhólmi og Helsinki eða laust fyrir kl. 17:30 að Mið-Evróputíma. Breytingin er hluti af aukinni samræmingu í viðskiptaumhverfi kauphallanna innan OMX samstæðunnar til hagræðis fyrir fjárfesta. Fastur lokunartími að Mið-Evróputíma þýðir að lokunartími að staðartíma breytist á milli sumars og vetrar. Að staðartíma munu markaðir Kauphallarinnar loka um hálftíma fyrr en nú er (15:30) á sumrin en um hálftíma síðar (16:30) á veturna. Viðskipti í Kauphöllinni munu hins vegar hefjast á sama tíma og nú. Samfelld viðskipti hefjast því eftir sem áður kl. 10 að staðartíma. Eftir breytinguna verður viðskiptatími í Kauphöllinni því sem hér segir: Staðartími Mið-Evróputími Sumar Vetur Sumar Vetur Forviðskiptatímabil 08:00 08:00 10:00 09:00 Opnunaruppboð 09:45 09:45 11:45 10:45 Samfelld viðskipti 10:00 10:00 12:00 11:00 Lokunaruppboð 15:20 16:20 17:20 17:20 Lok viðskipta 15:23 16:23 17:23 17:23 Eftirviðskiptatímabil 15:40 16:40 17:40 17:40 Lokað 16:00 17:00 18:00 18:00 "Það er ánægjulegt að kynna þessa breytingu nú þegar samþætting Kauphallarinnar við OMX er að komast á lokastig og styttist í að skráð félög verði kynnt með öðrum félögum í Nordic Exchange. Kauphöllin hefur lengi lagt áherslu á samræmingu við aðra markaði innan OMX og samstilltur lokunartími er enn eitt skrefið sem auðveldar aðgengi að íslenska markaðnum," segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, um breytinguna. Ofangreind breyting á lokunartíma fékk afgerandi stuðning í könnun sem Kauphöllin gerði meðal kauphallaraðila. Kauphallaraðilar sem standa að baki um 90% viðskipta studdu hana og sumir vildu jafnvel ganga enn lengra og breyta upphafstíma viðskipta þannig að hann yrði ávallt hinn sami að Mið-Evróputíma. Hljómgrunnur fyrir breytingu á upphafstíma viðskipta reyndist þó ekki nægur til að réttlæta slíka breytingu að sinni. Kauphöllin álítur þessa breytingu til heilla fyrir markaðinn. Í inngöngu Kauphallarinnar í OMX felast tækifæri fyrir útgefendur og kauphallaraðila. Sýnileiki eykst til muna og reikna má með auknum áhuga erlendra fjárfesta. Aukið samræmi í viðskiptaumhverfi Kauphallarinnar og annarra kauphalla innan OMX, þannig að sama umhverfi blasi við markaðsaðilum hvar sem þeir vilja eiga viðskipti, sýnir að íslenski markaðurinn er í reynd hluti af stærra markaðssvæði og þannig er erlendum fjárfestum auðvelduð aðkoma að markaðnum.