Hagnaður eykst um 27% og er 103 milljónir evra á árinu 2006 - Góður árangur í Mið- og Austur-Evrópu og Bandaríkjunum - Tekjur Actavis Group rúmlega tvöfölduðust á árinu 2006 og námu 1.379 milljónum evra (121 milljarði króna) og EBITDA framlegðarstig nam 20,8%. Undirliggjandi hagnaður samstæðunnar nam 148,8 milljónum evra (13 milljörðum króna) á árinu 2006 og 38,8 milljónum (3,4 milljörðum króna) á fjórða ársfjórðungi sem er um 70% aukning frá fyrra ári. Helstu atriði - fjórði ársfjórðungur og árið 2006 " Tekjur á fjórða ársfjórðungi jukust um 80,0% í 350,2 milljónir evra (4F 2005: 194,5 milljónir evra) og um 138,2% í 1.379,9 milljónir evra fyrir árið í heild (2005: 579,3 milljónir evra). " Undirliggjandi tekjuvöxtur nam 17,1% í fjórðungnum (4F 2005 pro forma: 299,1 milljónir evra) og 9,4% fyrir árið í heild (2005 pro forma: 1,261 milljónir evra, sem endurspeglar sterkan vöxt í Austur Evrópu og Bandaríkjunum. " Eftir tekjusviðum: " Sala í Mið- og Austur-Evrópu og Asíu nam 148,6 milljónum evra í fjórðungnum (4F 2005 pro forma: 113,2 milljónir evra), eða sem nemur 31,3% vexti í fjórðungnum og 17,9% fyrir árið í heild. " Pro forma sala í Norður-Ameríku jókst um 28,9% í 92,0 milljónir evra í fjórðungnum (4F 2005 pro forma: 71,4 milljónir evra). Það samsvarar undirliggjandi vexti sem nemur 28,9% og 12,5% fyrir árið í heild. " Sala í Vestur Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku jókst um 13,1% í 76,9 milljónir evra (4F 2005 pro forma: 68,0 milljónir evra), en á árinu í heild sinni stóðu tekjurnar í stað, m.a. vegna mikilla verðlækkana í Þýskalandi. " Sala til þriðja aðila dróst saman um 25,5% í 33,8 milljónir evra og um 6,5% í 134,3 milljónir evra fyrir árið í heild, einnig vegna verðlækkana í Þýskalandi. " EBITDA framlegð var 19,9% í fjórðungnum og 20,8% fyrir árið í heild. Ef dreifing lyfja í Búlgaríu er undanskilinn, þá væri framlegð samstæðunnar 21,7% á fjórðungnum og 22,3% fyrir árið. " Hagnaður e.skatta var 32,5 milljónir evra í fjórðungnum og 102,7 milljónir á árinu. Undirliggjandi hagnaður í fjórðungnum dróst saman um 1,5% í 38,8 milljónir evra en jókst um 71,1% fyrir árið í heild. (án tillits til einskiptiskostnaðar vegna PLIVA og afskriftar á yfirverði). " Undirliggjandi þynntur hagnaður á hlut hækkaði um 16,7% og var 0,03190 á árinu. " Actavis lauk mikilvægum fyrirtækjakaupum í Bandaríkjunum, Rússlandi og Indlandi, sem er reiknað með að skili sér í aukinni sölu og lægri framleiðslukostnaði á næstu árum. " Alls voru markaðssett 113 samheitalyf á hina ýmsu markaði samstæðunnar í fjórðungnum og samtals 376 á árinu öllu. 1.október - 31.desember 1.janúar - 31.desember Þúsundir evra 4F 2006 4F 2005 % Breyting 12M 2006 12M 2005 % Breyting Heildartekjur.............. 350.183 194.547 80,0% 1.379.921 579.264 138,2% Heildargjöld............... -304.601 -160.037 90,3% -1.182.337 -472.751 150,1% EBITDA..................... 69.548 52.156 33,3% 287.134 148.471 93,4% EBITDA %................... 19,9% 26,8% -25,9% 20,8% 25,6% -18,8% Hagnaður fyrir skatta.... 38.121 36.647 4,0% 127.257 91.479 39,1% Undirliggjandi hagnaður....... 38.827 38.254 1,5% 148.819 86.679 71,7% Hagnaður eftir skatta..... 32.540 35.416 -8,1% 102.689 81.003 26,8% Undirliggjandi hagnaður á hlut 0,00892 0,01121 -20,4% 0,03190 0,02734 16,7% Hagnaður á hlut.................. 0,00700 0,01036 -32,5% 0,01804 0,02548 -29,2% Skilgreiningar á undirliggjandi vexti, hagnaði og útreikningi á hagnaði á hlut eru á síðu 11. Róbert Wessman, forstjóri Actavis, um uppgjörið: "Það er ánægjulegt að sjá góðan árangur félagsins á árinu og að metnaðarfull rekstrarmarkmið um framlegð og hagnað hafi náðst. Þá var undirliggjandi rekstur félagsins góður og mikill vöxtur var á mörkuðum okkar í Bandaríkjunum og Mið- og Austur-Evrópu. Auk þess styrktum við samkeppnistöðu okkar enn frekar með kaupum á fjórum nýjum félögum, sem munu styðja við sölustarfsemi okkar og þróunarstarf, og gera okkur kleift að ná aukinni hagræðingu í rekstri á næstu árum."