Ný heiti skuldabréfavísitalna OMX Nordic Exchange á Íslandi


Frá og með 2. apríl næstkomandi munu íslensku skuldabréfavísitölurnar bera ný nöfn sem fylgja nafnastaðli OMX. Ný vísitöluauðkenni byrja á OMX og næsti stafur vísar til Íslands ("I" fyrir Ísland). Tveir næstu stafir vísa til fasts meðaltíma viðkomandi vísitölu og að lokum lýsa síðustu stafirnir hvort um verðtryggða ("I") eða óverðtryggða ("NI") vísitölu er að ræða. Meðfylgjandi er listi yfir vísitöluheitin og nánari upplýsingar.

Birting vísitölugilda
Öll vísitölugildi eru birt í lok dags.

Yfirlit yfir vægi flokka í vísitölum
Yfirlit yfir vægi undirliggjandi flokka er aðgengilegt á heimasíðu OMX Nordic Exchange. Til að nálgast yfirlitið þarf að gerast áskrifandi með því að senda beiðni á brynjar.olafsson@omxgroup.com.

Aðferðafræði skuldabréfavísitalna OMX á Íslandi
Nálgast má ítarlega lýsingu á vísitölunum og aðferðafræði þeirra á eftirfarandi vefslóð: http://www.icex.is/is/about_bond_index?p_dummy=&p_period=1D&menu2show=1.6.1.2.


Nánari upplýsingar veitir:
Brynjar Örn Ólafssson	+354 525 2856


Attachments

OMXI Iceland - Statement.xls