Eignarhaldsfélagið Bolar - Ársuppgjör 2006


Tap að upphæð 44 milljónir krónur varð af rekstri Eignarhaldsfélagsins Bola ehf. á árinu 2006 samanborið við  475 milljón króna hagnað árið áður. Við samanburð á milli ára er rétt að hafa í huga að verulegar breytingar urðu á starfsemi félagsins fyrri hluta árs 2005 en þá seldi félagið stóran hluta af starfsemi sinni til Promens hf. eins og fram hefur komið í fréttatilkynningu frá félaginu og er hagnaður af rekstri félagsins árið 2005 tilkominn vegna framangreindrar sölu.

Endurskoðað uppgjör  samstæðu Eignarhaldsfélagsins Bola ehf. fyrir árið 2006 var samþykkt á stjórnarfundi félagsins 30. mars 2007.

Eftirfarandi tafla sýnir helstu niðurstöður úr samstæðureikningi Eignarhaldsfélagsins Bola ehf.


Upphæðir í þús kr, verðl. hvers árs	2006	2005
	1/1 - 31/12	1/1 - 31/12
Tekjur	1.734.050	1.442.343
Rekstrargjöld	1.723.057	1.482.891
Hagn.(tap) f. Fjármagnsliði (EBIT)	10.997	-40.548
EBIT, %	0,6%	-2,8%
		
Vergur hagnaður, (EBITDA)	123.787	50.492
EBITDA, %	7,1%	3,5%
		
Fjármagnsgjöld	-53.456	-117.031
Söluhagnaður eignarhluta í félögum	0	656.041
Hagnaður (tap) f. skatta	-42.459	498.462
Skattar	-1.492	-23.239
Hlutdeild minnihluta	0	0
 	 	 
Önnur gjöld	0	0
 	 	 
Hagnaður (tap) ársins	-43.951	475.223
 	 	 
Veltufé frá rekstri	94.079	-67.226
 	 	 
Efnahagur	31. 12. 2006	31. 12. 2005
Fastafjármunir	1.555.493	1.632.329
Veltufjármunir	838.707	603.656
Eignir samtals	2.394.200	2.235.985
Eigið fé	660.022	615.123
-þar af hlutafé	135.323	135.323
Víkjandi lán móðurfélags	0	0
Skuldbindingar 	193.003	200.043
Langtímaskuldir	1.075.673	1.079.322
Skammtímaskuldir	465.502	341.497
Skuldir samtals	1.734.178	1.620.862
Skuldir og eigið fé	2.394.200	2.235.985
 	 	 
Helstu kennitölur	31. 12. 2006	31. 12. 2005
Eiginfjárhlutfall	27,6%	27,5%
Veltufjárhlutfall	1,80	1,77
 	 	 

Rekstur samstæðu Eignarhaldsfélagsins Bola ehf. á árinu 2006 samanstóð af þremur  rekstrarfélögum; Provinor AS (áður Sæplast Norge AS), Sæplast Ålesund AS og Sæplast Canada Inc. auk móðurfélagsins. Rekstrartekjur dótturfélaganna þriggja ásamt tekjum af starfsemi móðurfélagsins voru 1.734  milljónir króna samanborið við 1.442 milljónir króna árið áður. Skýrist aukning tekna að mestu leiti á veikingu íslensku krónunnar. Hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var á árinu 2006 123,8 milljón króna eða 7,1% og skiluðu öll dótturfélögin jákvæðri EBITDA. Sambærileg EBITDA árið 2005, að teknu tilliti til þess að 58,8 milljónir króna af tekjum ársins 2005 var vegna sölu eigna, var -8,3 milljónir króna og er batinn í EBITDA framlegð milli ára því 132,1 milljón króna. Þær hagræðinga aðgerðir og endurskipulagning  sem unnið hefur verið að á undanförnum misserum í fyrirtækjunum hafa því skilað góðum og áþreifanlegum árangri.  Hrein fjármagnsgjöld námu 53,5 milljónum króna, tap fyrir skatta var 42,5 milljónir króna og tap tímabilsins eftir skatta 44 milljónir króna. 

Niðurstöður efnahagsreiknings eru 2.394  milljónir króna þar af eigið fé 660 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall 27,6%. 

Ársreikningur félagsins fyrir árið 2006 er gerður á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla, IFRS en fram til ársloka 2005 hafði reikningurinn verið gerður á grundvelli laga um ársreikninga og almennt viðurkenndra íslenskra reglna um gerð ársreikninga (GAAP). Samanburðartölur fyrir árið 2005 hafa verið leiðréttar til samræmis við mismun á þessum tveimur aðferðum.

Eins og framan greinir varð umtalsverður bati á rekstri dótturfélaganna á árinu miðað við fyrra ár og skiluðu þau öll jákvæðri EBITDA framlegð. Veruleg umskipti hafa orðið í rekstri Sæplast Ålesund og skilaði félagið hagnaði. Tekjur félagsins hafa aukist milli ára og er verkefnastaða þess mjög góð. Ljóst er því að þær fjölmörgu endurbætur sem unnið var að á síðasta ári hafa skilað tilætluðum árangri. Fyrirtækið hefur verið rekið í samvinnu við önnur hverfisteypufyrirtæki Promens hf. Lítilsháttar tap varð af rekstri Sæplast Canada  á árinu en þær hagræðingaraðgerðir sem unnið hefur verið að á undanförnum misserum hafa skilað ágætum árangri. Mikil árstíðabundin sveifla er í tekjum félagisins, mjög stór hluti framleiðsluvaranna eru ker fyrir fiskiðnað en markaður fyrir þau var erfiður í Norður Ameríku á árinu. Fyrirtækið er rekið í samstarfi við hverfisteypufyrirtæki Promens hf. í Norður Ameríku. Provinor var rekið með tapi á árinu. Á fyrstu mánuðum ársins var nýr tækjabúnaður til framleiðslu á fríholtum að fullu tekinn í notkun í verksmiðju fyrirtækisins en búnaðurinn hafði verið smíðaður á s.l. ári. Jafnframt voru gerða umtalsverðar breytingar á ýmsum öðrum tækjabúnaði verksmiðjunnar. Í framhaldi af því að hinn nýi tækjabúnaður var tekinn í notkun var ákveðið að einfalda vöruframboð félagsins og hætta framleiðslu á vörum sem framleiddar voru í tækjum sem ekki stóð til að endurnýja. Leiddi það til umtalsverðrar fækkunar á starfsmönnum í framleiðsludeild fyrirtækisins sem kom til framkvæmda á haustmánuðum. Hinn nýji tækjabúnaður hefur fyllilega staðið undir væntingum og hafa þær vörur sem í honum eru framleiddar fengið mjög góðar viðtökur á markaði.

Sæplast Álesund hefur nú verið selt Promens hf. sem tók við rekstrinum miðað við s.l. áramót og reka Bolar nú tvö fyrirtæki annars vegar Sæplast Canada og Provinor í Álasundi Noregi. Það sem af er árinu hefur rekstur fyrirtækjann gengið samkvæmt áætlun og eru horfur í rekstri þeirra ágætar.

Nánari upplýsingar veitir Geir A. Gunnlaugsson í síma 580 5588 eða 892 8040.



Attachments

Eignarhaldsfelagi Bolar - 12 2006.pdf