Ársreikningur Sveitarfélagsins Álftaness fyrir árið 2006 var tekinn til fyrri umræðu í Bæjarstjórn Álftaness þann 15.maí. Reikningurinn verður tekinn til síðari umræðu 29. maí n.k. Helstu frávik rekstrar A og B hluta Rekstrarniðurstaða samantekins ársreiknings A- og B- hluta fyrir árið 2006 sýnir halla upp á 320 m.kr. samanborið við 48 m.kr. halla samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun. Stærstu frávikin sem urðu á rekstri sveitarfélagsin liggja í Eignasjóði eða um 109 m.kr. sem skýrist annars vegar vegna bakfærslu á söluhagnaði lóðar frá fyrra ári, að fjárhæð 52 m.kr. og hins vegar vegna frestunar á sölu lóða. Þá hækkuðu útgjöld til fræðslu-og uppeldsimála um tæpar 60. m.kr. umfram það sem gert var ráð fyrir í endurskoðaðri áætlun. Hækkun lífeyrisskuldbindingar var rúmum 10 m.kr. meiri en áætlun gerði ráð fyrir og fjármagnsliðir fóru 73 m.kr. fram yfir áætlun. Þá urðu ýmsir aðrir liðir 20 m.kr. óhagstæðari en samkvæmt áætlun. Helstu frávik fjárfestinga A og B hluta Heildarfjárfestingar A- og B hluta (brúttó) urðu 446 m.kr. á árinu 2006 eða 120 m.kr. meiri en áætlað hafði verið. Þar munar mestu um að ekki varð að eignarsölu að fjáhæð 120 m.kr. sem áætlun lagði upp með. Efnahagur A og B hluta Heildarskuldir samantekins ársreiknings A og B hluta a.t.t.t. lífeyrisskuldbindingar hækkuðu milli ára úr 1.031.436 m.kr. í árslok 2005 í 1.676.839 m.kr. í árslok 2006. Hækkunin skýrist af nýjum lántökum að fjárhæð 444 m.kr, 55 m.kr. vegna innborgana á lóðarsölu og af áföllnum verðbótum og gengistapi langtímalána. Framtíðarhorfur Til að stemma stigu við hallarekstri ársins 2006 hafa forráðamenn sveitarfélagsins gripið til ýmissa aðgerða. Í byrjun árs 2007 var fráveita sveitarfélagsins seld og íþróttamannvirki en um leið var gerður framkvæmda- og leigusamningur um íþróttamannvirkin til 30 ára. Þá hafa verið gerð samkomulög við ýmsa aðila um uppbyggingu miðsvæðis en þau eiga að skila sveitarfélaginu verulegum tekjum í formi lóðarsölu og gatnagerðar sem eiga að auðvelda sveitarfélaginu að standa við skuldbindingar sínar. Jafnframt þessu munu forráðamenn sveitarfélagsins leita allra leiða til að breikka og auka tekjustofna sveitarfélagsins ásamt því að gæta aðhalds í rekstri.