Helstu niðurstöður úr samstæðuuppgjöri Flögu Group hf. 1. ársfjórðungur 2007 • Tekjur námu USD 7.2 milljónum sem er 2,4% samdráttur frá sama tímabili fyrra árs. • EBITDA framlegð var neikvæð um USD 202 þúsund en var neikvæð um USD 71 þúsund (fyrir kostnað vegna skipulagsbreytinga) á fyrsta fjórðungi 2006. • 3% lækkun rekstrargjalda á fyrsta fjórðungi 2007 í samanburði við sama tímabil fyrra árs. • Tap eftir skatta nam USD 605 þúsund á fyrsta fjórðungi 2007 í samanburði við tap er nam USD 877 þúsund á fyrsta fjórðungi 2006. Lykiltölur úr samstæðuuppgjöri: Sjá viðhengi. Samantekt fyrsta ársfjórðungs 2007 Eftirspurn eftir þjónustu Sleeptech hélt áfram að vaxa í norð-austur hluta Bandaríkjanna. Nokkrir samningar Sleeptech við sjúkrahús hafa verið endurnýjaðir á tímabilinu og fyrirtækið heldur áfram að vera einn stærsti veitandi þjónustu á sviði svefnmælinga á sínum markaði. Sleeptech hefur hafið sérstakt markaðsstarf til að vinna að frekari stækkun rekstursins á starfssvæði sínu og gert er ráð fyrir að þjónustusamningum fjölgi. Endurskipulagningu á starfsemi Emblu er lokið og vinnur félagið nú að því að tryggja samband sitt við viðskiptavini og dreifiaðila um allan heim með því að innleiða samhæfða vörustjórnun og áframhaldandi aukningu í hagkvæmni og skilvirkni. Í Bandaríkjunum hafa Embla og Embletta verið valin af viðkomandi yfirvöldum “American Academy of Sleep Medicine” til að vera staðall fyrir rannsóknir þeirra á gagnsemi heimamælinga við svefnrannsóknir. Þessi tilraun gæti orðið til þess að heimamælingar við svefnrannsóknir verði heimilaðar í Bandaríkjunum og að tryggingafélög fari þá að greiða fyrir þær og það gæti haft umtalsverð áhrif á sölu Emblettu í Bandaríkjunum. Embletta er nú talin vera ,,viðmiðunarstaðall” tækja til heimamælinga á Evrópumarkaðnum. Embla heldur áfram að leita að vaxtartækifærum á öllum mörkuðum sínum í heiminum. Rekstur fyrsta ársfjórðungs 2007 Tekjur Flögu Group á fyrsta fjórðungi 2007 námu USD 7,2 milljónum sem er 2,4% samdráttur í samanburði við fyrsta fjórðung 2006. Framlegð rekstrartekna var 61% í samanburði við 63% á sama tímabili fyrra árs. Fyrirtækið telur þetta stafa af sveiflu á markaði og að ekki sé um að ræða verulega breytingu á markaðsaðstæðum. EBITDA framlegð á fyrsta fjórðungi 2007 var neikvæð um USD 202 þúsund eða 2,8% en var neikvæð um USD 71 þúsund eða 1% á fyrsta fjórðungi 2006 miðað við tölur fyrir kostnað vegna skipulagsbreytinga. Tap fyrir skatta nam USD 742 þúsund á fyrsta fjórðungi 2007 í samanburði við tap er nam USD 1,1 milljón á sama tímabili fyrra árs. Efnahagsreikningur Heildareignir í lok fyrsta ársfjórðungs 2007 námu USD 61,2 milljón sem er samdráttur um USD 967 þúsund frá ársbyrjun. Reiknuð skattinneign er eignfærð og nam USD 4,4 milljónum í lok fyrsta ársfjórðungs 2007 og USD 4,2 milljónum í árslok 2006. Eigið fé nam USD 39,6 milljónum þann 31. mars 2007 samanborið við USD 40,2 milljón í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfallið í lok fyrsta fjórðungs var 65% eða óbreytt frá árslokum 2006. Sjóðsstreymi Veltufé frá rekstri var neikvætt um USD 513 þúsund á fyrsta fjórðungi 2007 en var neikvætt um USD 265 þúsund á fyrsta fjórðungi 2006. Framtíðarhorfur Eins og fram hefur komið í síðustu afkomutilkynningum félagsins þá hafa skipulagsbreytingar Emblu verið í brennidepli í rekstri félagsins og þeim er nú lokið á farsælan hátt. Verkefnið framundan er að styðja við vöxt félagsins og afgerandi skref hafa þegar verið tekin í þá átt. Yfirstjórn Flögu Group er bjartsýn á að markmiðum þessa árs verði náð og telur líkur á langtíma rekstrarárangri félagsins vera góðar. Frekari upplýsingar veitir: David Baker forstjóri Flögu Group hf. í síma: +1 480 236 4705