Meðfylgjandi er ársreikningur Reykjanesbæjar fyrir árið 2006 og fréttatilkynning vegna hans, en árreikningurinn var samþykktur af hafnarstjórn 25. apríl 2007 og bæjarstjórn 15. maí 2007. Ársreikningur Reykjaneshafnar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar fjármálaráðuneytisins um reikingsskil sveitarfélaga. Starfsemi Reykjaneshafnar er fjármögnuð með rekstratekjum frá hafnarrekstri og rekin sem fjárhagslega sjálfstætt fyrirtæki í 100% eigu Reykjanesbæjar. Rekstrartekjur hafnarinnar á árinu 2006 námu 111,2 millj. kr. og rekstrargjöld kr. 94,9 m.kr. og þar af laun 42,0 m.kr. samkvæmt ársreikningi. Hagnaður fyrir afskriftir 16,3 m.kr. Afskriftir 35,5 m.kr. fjármunatekjur og -gjöld 270,2 mkr. en tap ársins 289,5 mkr. Framkvæmdir voru litlar á árinu 2006, aðeins unnið við gatnagerð, lóðir og skipulag hafnar- og atvinnusvæðisins í Helguvík og fjárfest fyrir 20,5 m.kr. Framtíðarsýn: Lóðaúthlutun í Helguvík fór af stað í lok ársins 2005 og verður haldið áfram á árinu 2007. Mikil uppbygging á atvinnusvæðinu í Helguvík fór af stað á árinu 2006, og verða reistar fjöldi bygginga fyrir iðnaðar- og þjónustufyrirtæki á árinu 2007. Rekstrarumhverfi Reykjaneshafnar mun því batna, tekjur aukast í tengslum við uppbygginguna í Helguvík í formi lóðarleigutekna. Reykjanesbær hefur einnig samþykkt að allar gatnagerðar- og fasteignagjaldatekjur á hafnarsvæðunum í Keflavík, Njarðvík og Helguvík muni renna til Reykjaneshafnar frá og með 1. janúar 2006. Reykjaneshöfn undirritaði 27.4. 2006 hafnarsamning og lóðarsamning í Helguvík við Norðurál. Fyrirhugað er að reisa allt að 250 þúsund tonna álver í áföngum. Fyrsti áfangi yrði 150 þúsund tonna álver og vonast er til að bygging hans geti hafist í lok ársins 2007 með jarðvegsvinnu lóðar, og framleiðsla hafist á árinu 2010. Í framhaldi af því muni rekstur hafnarinnar komast í jafnvægi og tekjurnar verða hærri en fjármagnskostnaðurinn, og höfnin nái að greiða niður skuldir sínar.