Reykjavík, 29. júní, 2007. Róbert Wessman, forstjóri Actavis Group hf., hefur tilkynnt Novator að hann samþykki sölu á öllum hlutum í eigu hans og tengdra félaga til Novator samkvæmt þeim tilboðsskilmálum sem fram koma í tilboði Novator. Alls er um að ræða 136.732.633 hluti að nafnverði. Sindri Sindrason, stjórnarmaður í Actavis Group hf., hefur einnig tilkynnt Novator að hann samþykki sölu á öllum hlutum í eigu hans og tengdra félaga til Novator samkvæmt þeim tilboðsskilmálum sem fram koma í tilboði Novator. Alls er um að ræða 21.658.059 hluti að nafnverði. Tilboðsverð Novator er EUR 1,075 pr. hlut og eru fyrirvarar samkvæmt tilboði Novator í gildi þannig að sala hlutabréfanna hefur ekki átt sér stað.
- Róbert Wessman, forstjóri Actavis Group hf. og Sindri Sindrason, stjórnarmaður Actavis Group hf. selja inn í tilboð Novator
| Source: Actavis Group hf.