Novator hefur tryggt sér vilyrði fyrir yfir 90% hlutafjár í Actavis, að teknu tilliti til eigin hluta og hluta í eigu Novator. Samkvæmt yfirtökutilboði Novator rennur tilboðsfrestur út miðvikudaginn 18. júlí n.k. Þeir hluthafar sem hafa ekki samþykkt tilboðið hafa frest fram til þess tíma til að ganga frá samþykki á grundvelli tilboðsins, að öðrum kosti öðlast þeir ekki rétt til viðbótargreiðslu ef Novator selur hlut sinn innan 12 mánaða.