- KPMG hf. verður viðurkenndur ráðgjafi (CA) á First North


OMX Nordic Exchange á Íslandi hefur samþykkt að KPMG hf. verði viðurkenndur
ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Hlutverk CA felst í
að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir og
vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru
til viðskipta á markaðnum. CA fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan
markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær
aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North. 

Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla
ákveðin skilyrði.  Þau helstu eru að CA þarf að: 
 
-  vera lögaðili.
 
-  hafa nægilega marga starfsmenn. 

-  tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri
   reynslu í fjármálaþjónustu við fyrirtæki. 
 
-  setja innri reglur um viðskipti með hlut í félögum sem þiggur þjónustu
   Certified Adviser. 

-  hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga. 

First North býður KPMG hf. velkominn til starfa sem Certified Adviser.