- Innlausnartímabili lýkur


Innlausnartímabili vegna hluta í Mosaic Fashions hf. lauk kl. 16 mánudaginn 17.
september. Tessera Holding ehf. og samstarfsaðilar yfirtökutilboðs eiga nú
samtals 99,9% af hlutafé Mosaic Fashions hf. Útistandandi hlutir verða
innleystir til Tessera Holding ehf. og greiðsla fyrir hlutina greidd á
einstaklingsbundna geymslureikninga hjá Kaupþingi banka hf. 

Eftir innlausnina munu Tessera Holding ehf. og samstarfsaðilar eiga 100%
hlutafjár í Mosaic Fashions hf. 

Nánari upplýsingar veitir Þórólfur Jónsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings banka hf., í síma 444-6000.