Fjármálaeftirlitið samþykkti í dag breytingu SPRON í hlutafélag á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki 161/2002. SPRON hefur þar með uppfyllt öll lögformleg skilyrði breytingarinnar og telst því hlutafélag frá og með 1. apríl 2007. Í kjölfar samþykkis Fjármálaeftirlitsins verður nú óskað eftir skráningu í OMX Norrænu kauphöllinni Íslandi. Frekari upplýsingar veitir: Guðmundur Hauksson Sími: 550 1200 Um SPRON: SPRON er alhliða fjármálafyrirtæki sem veitir viðskipta- og fjárfestingarbankaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og fagfjárfesta á höfuðborgarsvæðinu. Bankinn er leiðandi á íslenskum fjármálamarkaði hvað ánægju viðskiptavina varðar og leggur ríka áherslu á persónulega og góða þjónustu. Dótturfélög SPRON eru SPRON Verðbréf, SPRON Factoring, Netbankinn, Frjálsi Fjárfestingarbankinn og Curron. SPRON rekur 9 útibú á höfuðborgarsvæðinu. Hjá SPRON og dótturfélögum starfa um 250 manns.
- Fjármálaeftirlitið samþykkir breytingu SPRON í hlutafélag
| Source: SPRON