Leiðrétting: Enskri frétt bætt við Stjórn SPRON-sjóðsins ses. hefur samþykkt að selja að hámarki 4,8% hlut í SPRON hf. á fyrsta viðskiptadegi SPRON hf. 23. október næstkomandi. Markmiðið með sölunni er að stuðla að virkri verðmyndun á markaði. Þegar og ef sjóðurinn hefur selt 60% af áætluðu magni eða í síðasta lagi kl. 14:00 á fyrsta viðskiptadegi eiga tveir viðskiptavakar valrétt á að kaupa af honum hluti í SPRON að fjárhæð 300 milljónir hvor á vegnu meðalverði þeirra hluta sem SPRON-sjóðurinn hefur selt í viðskiptakerfi kauphallar fram að þeim tíma. Þegar og ef sjóðurinn selur hlutabréf í SPRON verður tilkynnt um viðskiptin um leið og viðskiptunum lýkur eða í síðasta lagi í lok dags. SPRON-sjóðurinn ses er innherji í SPRON hf. Engar innherjaupplýsingar eru fyrirliggjandi eftir að tilkynning um óendurskoðað 8 mánaða uppgjör var birt 17. október síðastliðinn. Um SPRON-sjóðinn ses SPRON-sjóðurinn ses er stærsti hluthafi í SPRON hf. og á nú 15% hlut. Stefna sjóðsins er að beita sér ekki eða hafa áhrif á stjórn SPRON að öllu jöfnu og langtímamarkmið sjóðsins er að eign hans nemi ekki meira en 5%. Frekari upplýsingar veitir: Jóna Ann Pétursdóttir Framkvæmdastjóri SPRON-sjóðsins ses S: 550 1771
Leiðrétting - SPRON-sjóðurinn ses. áformar sölu á að hámarki 4,8% í SPRON hf. við skráningu - Frétt send 2007-10-19 12:41:13 CET
| Source: SPRON