OMX Nordic Exchange Iceland hf. hefur yfirfarið lýsingu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf, dags. 18. október 2007, og staðfestir hér með að lýsingin uppfyllir kröfur laga um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003 sem breytt var með lögum nr. 31/2005 og reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna. Hlutabréf Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. verða skráð á aðalmarkað OMX ICE á þriðjudag, þann 23. október 2007. Útgefnir hlutir í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis eru 5.004.000.000, hver hlutur nemur 1 krónu að nafnverði. Bréf félagsins eru skráð hjá Verbréfaskráningu Íslands.