Hlutabréf Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. (SPRON) verða tekin til viðskipta á aðalmarkaði OMX ICE þriðjudaginn 23. október 2007. Útgefnir hlutir í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis eru 5.004.000.000, hver hlutur nemur 1 krónu að nafnverði. Bréf félagsins eru skráð hjá Verbréfaskráningu Íslands. Auðkenni Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis í viðskiptakerfi Kauphallarinnar verður SPRON. ISIN-auðkenni IS0000010932. Orderbook ID 43375. Viðskiptalota 5000 hlutir. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis verður tekinn inn í vísitölu Fjármálaþjónustu 24. október 2007. Atvinnugreinaflokkun skv. GICS staðli: GICS númer og nafn Undirgrein: 40101015 Regional Banks Atvinnugrein: 401010 Commercial Banks Atvinnugreinahópur: 4010 Banks Atvinnugeiri: 40 Financial Umsjónaraðili skráningarinnar er Kaupþing banki hf.
- Hlutabréf SPRON verða tekin til viðskipta á aðalmarkaði OMX ICE þriðjudaginn 23. október 2007
| Source: SPRON