- Gísli Kjartansson segir sig úr stjórn VBS fjárfestingarbanka


Með bréfi dagsettu 10. desember 2007 hefur Gísli Kjartansson sagt sig úr stjórn
VBS fjárfestingarbanka hf. Gísli hefur verið formaður stjórnarinnar.  Í bréfinu
segir Gísli ástæðuna að Sparisjóður Mýrarsýslu, sem hann sé í forsvari fyrir,
hafi keypt verðbréfafyrirtækið Nordvest og ákveðið hafi verið að efla og
styrkja rekstur þess.  Nordvest starfar að hluta á sama markaði og VBS
fjárfestingarbanki hf. 

Páll Magnússon, sem áður var varaformaður, hefur tekið við stjórnarformennsku í
VBS fjárfestingarbanka hf.