Moody's endurskoðar lánshæfismatseinkunn Landsbankans til mögulegrar lækkunar


Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur tekið til athugunar
lánshæfismatseinkunn Landsbankans Aa3/C  með mögulega lækkun í huga. Hins vegar
hefur einkunn vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans, P-1,
verið staðfest, en það er jafnframt hæsta einkunn sem gefin er af Moody's. 

Nánari rökstuðning má finna í fréttatilkynningu frá Moody's hér meðfylgjandi.

Frekari upplýsingar veita:
Bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason s. 898 0177 og Halldór J.
Kristjánsson í s. 820 6399,  og Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri
Alþjóðasviðs í s. 820-6340. 

Attachments

moodys places icelandic banks on review for possible downgrade.pdf