Bakkavör Group kaupir 45% hlut í leiðandi köku- og brauðframleiðanda í Hong Kong


Reykjavík, 28. apríl 2008, Bakkavör Group hefur keypt 45% hlut í La Rose Noire,
einum helsta köku- og brauðframleiðanda í Hong Kong. Félagið hefur kauprétt á
45% hlut til viðbótar árið 2010 auk 90% hlutar í starfsemi fyrirtækisins í Kína
árið 2011. Kaupverðið er trúnaðarmál en kaupin voru fjármögnuð með láni frá
Mizuho Corporate Bank Limited. 

La Rose Noire sérhæfir sig í framleiðslu á hágæða kökum og brauðum fyrir
stórmarkaði og fyrirtæki í veitingaþjónustu í Hong Kong og Kína, auk
útflutnings ákveðinna vörutegunda til Nýja Sjálands, Taílands, Indlands,
Bandaríkjanna og Dubai. Fyrirtækið var upphaflega stofnað í Hong Kong sem
smásölubakarí árið 1991 en hóf verksmiðjurekstur árið 1994. Árið 2004 jók
fyrirtækið umfang sitt með opnun verksmiðju í Suður-Kína. Fyrirtækið er í dag
með um 250 starfsmenn í Hong Kong og 220 í Kína. Velta fyrirtækisins í Hong
Kong á síðasta ári nam 920 milljónum króna (12 milljónum Bandaríkjadala) og
tæplega 307 milljónum króna (4 milljónum Bandaríkjadala) í Kína. 

La Rose Noire verður fært í reikninga félagsins sem hlutdeildarfélag frá
kaupdegi en kaupin munu hafa óveruleg áhrif á afkomu félagsins. 


Ágúst Guðmundsson, forstjóri, sagði:

„Það er ánægjulegt að tilkynna um aðra fjárfestingu Bakkavarar í Hong Kong á
árinu. La Rose Noire er vel rekið fyrirtæki með reynslumikla stjórnendur og með
kaupunum styrkjum við rekstur Bakkavarar í Asíu enn frekar ásamt því að auka
vöruúrval okkar þar. Þá skapast einnig tækifæri til útvíkkunnar á starfsemi
félagsins til annarra Asíu-landa í náinni framtíð.“ 


Frekari upplýsingar veita:

Ágúst Gudmundsson, forstjóri
Sími: 550 9700

Ásdís Pétursdóttir, fjárfestatengsl
Sími: 858 9715


Um Bakkavör Group 

Bakkavör Group er leiðandi alþjóðlegt matvælafyrirtæki sem sérhæfir sig í
framleiðslu ferskra tilbúinna matvæla. Bakkavör Group rekur nú 63 verksmiðjur
og er með yfir 20 þúsund starfsmenn í 10 löndum. Höfuðstöðvar félagsins eru í
Reykjavík og er félagið skráð á OMX Nordic Exchange á Íslandi. (Auðkenni BAKK). 

Bakkavör Group var stofnað árið 1986 og hefur starfsemi félagsins vaxið
verulega á síðastliðnum 20 árum. Í dag er félagið leiðandi í framleiðslu á
ferskum tilbúnum matvælum á alþjóðavísu. Félagið hefur leiðandi markaðstöðu í
Bretlandi í lykilvöruflokkum sínum og framleiðir yfir 6.000 vörutegundir í 18
vöruflokkum. Vörur félagsins eru seldar undir vörumerkjum stórmarkaðanna.
Meginhluti starfseminnar fer fram í Bretlandi en auk þess er félagið með
starfsemi í Frakklandi, Belgíu, Spáni, Tékklandi, Suður-Afríku, Kína,
Bandaríkjunum, á Ítalíu og á Íslandi. 

Skráning á póstlista Bakkavör Group: investor.relations@bakkavor.com

Attachments

2008-04-28 la rose noire frettatilkynning.pdf