Bakkavör Group kaupir ítalskan pizzuframleiðanda


Reykjavík, 28 apríl 2008. Bakkavör Group hefur keypt ítalska fyrirtækið
Italpizza sem sérhæfir sig í framleiðslu á ferskum og frosnum eldbökuðum
pizzum. Kaupverðið er trúnaðarmál en kaupin voru fjármögnuð með láni frá Mizuho
Corporate Bank Limited. 

Helstu viðskiptavinir fyrirtækisins eru stórmarkaðir, heimsendingarþjónustur og
veitingastaðir víðsvegar um Evrópu og Norður - Ameríku. Italpizza var stofnað
árið 1991 og er með 230 starfsmenn í Modena á Norður Ítalíu. Velta
fyrirtækisins nam 4,9 milljörðum króna (40 milljónum evra) á árinu 2007. 

Italpizza verður hluti af Bakkavör Group frá kaupdegi og munu kaupin hafa
veruleg áhrif á veltu og afkomu af starfsemi félagsins á meginlandi Evrópu.
Bakkavör gerir ráð fyrir að salan hjá Italpizza muni aukast um 15% og EBITDA
muni nema að minnsta kosti 606 milljónum króna (5 milljónum evra). 


Ágúst Guðmundsson, forstjóri:

„Italpizza er alþjóðlegt fyrirtæki, þekkt fyrir framleiðslu sína á ekta
ítölskum hágæða pizzum og fellur því sérlega vel að starfsemi Bakkavarar. Þetta
er í fyrsta skipti sem við kaupum fyrirtæki sem sérhæfir sig að mestu í
framleiðslu á frosnum tilbúnum vörum sem sýnir mismunandi áherslur okkar á
hverjum markaði fyrir sig. Þessi kaup marka einnig upphaf starfsemi okkar á
Ítalíu, styrkja samkeppnisforskot okkar í framleiðslu á tilbúnum pizzum, auk
þess sem að grundvöllur skapast fyrir frekari vöxt á alþjóðavettvangi á þessu
sviði.“ 


Frekari upplýsingar veita:

Ágúst Gudmundsson, forstjóri
Sími: 550 9700

Ásdís Pétursdóttir, fjárfestatengsl
Sími: 858 9715


Um Bakkavör Group 

Bakkavör Group er leiðandi alþjóðlegt matvælafyrirtæki sem sérhæfir sig í
framleiðslu ferskra tilbúinna matvæla. Bakkavör Group rekur nú 63 verksmiðjur
og er með yfir 20 þúsund starfsmenn í 10 löndum. Höfuðstöðvar félagsins eru í
Reykjavík og er félagið skráð á OMX Nordic Exchange á Íslandi. (Auðkenni BAKK). 

Bakkavör Group var stofnað árið 1986 og hefur starfsemi félagsins vaxið
verulega á síðastliðnum 20 árum. Í dag er félagið leiðandi í framleiðslu á
ferskum tilbúnum matvælum á alþjóðavísu. Félagið hefur leiðandi markaðstöðu í
Bretlandi í lykilvöruflokkum sínum og framleiðir yfir 6.000 vörutegundir í 18
vöruflokkum. Vörur félagsins eru seldar undir vörumerkjum stórmarkaðanna.
Meginhluti starfseminnar fer fram í Bretlandi en auk þess er félagið með
starfsemi í Frakklandi, Belgíu, Spáni, Tékklandi, Suður-Afríku, Kína,
Bandaríkjunum, á Ítalíu og á Íslandi. 

Skráning á póstlista Bakkavör Group: investor.relations@bakkavor.com

Attachments

2008-04-28 kaup a italpizza frettatilkynning.pdf