2007 - Góð rekstarniðurstaða og traustur fjárhagur


Rekstur Akureyrarbæjar skilaði góðri rekstarniðurstöðu og fjárhagurinn er
traustur. Ársreikningar fyrir árið 2007 voru lagðir fram í bæjarráði í dag.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í
sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 24. júni 
og 1. júli nk. 

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar,
Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega
sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en
rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin
eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar,
Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar,
Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf,
Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og
Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar. 

Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel á árinu og er heildarniðurstaða ársins  betri
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir og er fjárhagurinn traustur.
Rekstrarniðurstaða samstæðunnar var jákvæð um 1.585 milljónir króna en áætlun
hafði gert ráð fyrir 1.414 milljóna króna hagnaði á árinu. Samkvæmt yfirliti um
sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 1.682 millj.kr. og handbært fé frá rekstri
1.671 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals 1.515 millj.kr.
Fjármögnunarhreyfingar námu samtals 2.761 millj.kr. Afborgun langtímalána nam
997 millj.kr. en ný langtímalán námu 1.495 millj.kr. Hækkun á handbæru fé á
árinu nam 425,5 millj.kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok 1.732,2
millj.kr. 

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 5.517.436
þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.473 og hafði aukist um 14
frá fyrra ári. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við
rekstrartekjur þess voru 51,4%. Annar rekstrarkostnaður var 35,6% af
rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 356 þús.kr. á hvern íbúa en
tekjur samtals 763 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2006 voru skatttekjurnar 315
þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 660 þús.kr. 

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 24.014
millj.kr., þar af eru veltufjármunir 3.264 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins
með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi 14.294 millj.kr.,
þar af eru skammtímaskuldir 2.945 millj.kr. Veltufjárhlutfallið er 1,11 í
árslok, en var 0,79 árið áður. Bókfært eigið fé nemur 9.720 millj.kr í árloken
nam árið áður 7.502 millj. kr. Eiginfjárhlutfall er 40% af heildarfjármagni en
var 31% árið áður. 


Helstu niðurstöðutölur úr rekstrarreikningi og sjóðstreymisyfirliti
samstæðureiknings Akureyrarbæjar árið 2007 má sjá í eftirfarandi töflu: 

Sjá viðhengi.


Efnahagsreikningur 
Helstu niðurstöðutölur samstæðu efnahagsreiknings 31. desember 2007 má sjá í
töflu hér að neðan  og til samanburðar eru sambærilegar tölur fyrir árið 2006. 

Sjá viðhengi.


Meðfylgjandi er einnig úr skýringum með ársreikninginum, þar sem fram kemur
heildaryfirlit um rekstur, yfirlit um lykiltölur og hvernig heildartekjur og
gjöld í hlutfalli við tekjur greinast síðustu 3 ár á verðlagi hvers árs í
þúsundum króna. 

Sjá viðhengi.

Attachments

akureyrarbr arsreikningur 2007.pdf frettatilkynning - arsreikningur 2007.pdf