Tap móðurfélags nemur 13,4 milljörðum eftir skatta. Tap samstæðu er 34,9 milljarðar eftir skatta. Eigið fé Milestone lækkaði um 14,9 milljarða frá áramótum og nam eigið fé móðurfélags 69 milljörðum þann 30. júní 2008, en eigið fé samstæðu var 55 milljarðar. Heildareignir móðurfélags voru 134 milljarðar en heildareignir samstæðu námu 513 milljörðum. Lántökur móðurfélags námu 41,3 milljarði og 6,2 milljarðar króna af þeim koma til greiðslu á árinu 2008. Heildarskuldir samstæðu Milestone, sem samanstanda af tryggingasamningum, innstæðum frá viðskiptavinum og öðrum skuldum námu 458 milljörðum í lok annars ársfjórðungs. Eiginfjárhlutfall móðurfélags var 51% og eiginfjárhlutfall á samstæðugrunni nam 11%. Sænska fjármálafyrirtækið Moderna er 92% af heildareignum Milestone. Heildareignir Moderna voru 444 milljarðar í lok tímabilsins, eigið fé þess var 59 milljarðar, eiginfjárhlutfall Moderna nam 13,2% og eiginfjárgrunnur félagsins var 76% umfram þau mörk sem sænska fjármálaeftirlitið setur. ÞRÓUN Á FYRRI HLUTA ÁRSINS Þann 1. janúar 2008 færði Milestone íslensku félögin Sjóvá og Askar Capital undir sænsku fjármálasamstæðuna Moderna, sem verður áfram dótturfélag Milestone. Eignatilfærslan styrkir grunnrekstur Moderna sem norrænnar fjármálasamstæðu. Moderna er móðurfélag allra dótturfélaga samstæðunnar sem starfa á sviðum trygginga, eignastýringar og bankastarfsemi á Norðurlöndum og í Benelux-löndum. Í kjölfar eignatilfærslunnar er Milestone eignarhaldsfélag um fjárfestingar í fyrirtækjum í fjármálaþjónustu og mun í framtíðinni einbeita sér að uppbyggingu á Moderna þar sem Milestone gegnir lykilhlutverki sem eini hluthafi félagsins. FJÁRHAGSÞRÓUN Á FYRRI HLUTA ÁRSINS 2008 Stærsta eign Milestone, Moderna, tapaði 6,2 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Þrátt fyrir það var vöxtur á helstu starfssviðum Moderna þótt árið hafi verið róstusamt á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Það sem eftir lifir árs mun Moderna beina kröftum sínum að áframhaldandi vexti auk þess sem dregið verður úr kostnaði til að auka frekar arðsemi samstæðunnar. Um 8,2 milljarðar króna af tapi Milestone skýrast af niðurfærslu á bókfærðu verði eigna í ljósi krefjandi markaðsaðstæðna. Varúðarniðurfærslur voru færðar á verði óskráðra eigna Milestone til að endurspegla verðbreytingar sambærilegra skráðra verðbréfa. Þetta var gert til að samstæðan verði betur undirbúin fyrir væntanlega skráningu Moderna í sænsku kauphöllina á árinu 2009. Gengistap Milestone nam 6,6 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2008. Allar skráðar íslenskar eignir eru færðar á markaðsvirði í reikningum dótturfélaga og hlutdeildarfélaga. Heildartap vegna skráðra íslenskra eigna var 5,9 milljarðar króna á fyrri hluta ársins 2008. Um 17,6% hlutur í norræna fjárfestingabankanum Carnegie er færður með hlutdeildaraðferð af dótturfélaginu Moderna. Varúðarniðurfærsla að fjárhæð 5,2 milljarðar króna var hinsvegar færð á ársfjórðungnum til þess að endurspegla betur muninn á markaðsvirði og bókfærðu virði eignarhlutarins. GuDmundur Ólason, forstjóri „Grunnrekstur Moderna var sterkur á fyrri helming ársins og Milestone hefur lagt kapp á að undirbúa Moderna fyrir skráningu í sænsku kauphöllina á næsta ári. Í framtíðinni mun styrkur Milestone birtast í styrk Moderna sem stærstu eign félagsins. Við lítum björtum augum til framtíðar og Moderna hefur náð sterkri markaðshlutdeild á norrænum markaði. Trú okkar á norrænan fjármálamarkað er mikil þrátt fyrir að erfiðleikar hafi steðjað að fjármálafyrirtækjum að undanförnu. Frekari vöxtur Moderna á Norðurlöndum mun auka áhættudreifingu Milestone til framtíðar og tryggja betur arðsemismarkmið félagsins og frekari vöxt á sviði trygginga, eignastýringar og bankastarfsemi.“ HORFUR FYRIR SEINNI HLUTA ÁRSINS 2008 Milestone telur framtíðarhorfur góðar fyrir Moderna á norrænum fjármálamarkaði. Eftir niðurfærslu óskráðra eigna félagsins til samræmis við almennar lækkanir á skráðum eignum gefa reikningar Milestone skýra mynd af stöðu félagsins og getu þess til að mæta krefjandi markaðsaðstæðum. Áfram verður lögð áhersla á hagræðingu í rekstri og uppbyggingu á grunnrekstri Moderna. UM MILESTONE Milestone er íslenskt eignarhaldsfélag sem fjárfestir í fyrirtækjum á sviði fjármálaþjónustu. Milestone hefur leyfi FME til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækjum og er með skráða víxla og skuldabréf á NASDAQ OMX Nordic Exchange á Íslandi. Milestone er eini hluthafinn í norrænu fjármálasamstæðunni Moderna Finance sem hefur skilgreint tryggingarekstur, eignastýringu og bankastarfsemi sem kjarnastarfsemi sína. Nánari upplýsingar: www.milestone.is eða hjá Guðmundi Ólasyni, forstjóra í síma: 414 1800