Eimskip tapar 20 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi


-Tekjur aukast um 48,3% milli ára
-Góður árangur í flutningastarfsemi
-Hár fjármagnskostnaður hefur mikil áhrif á afkomu
-Formlegt söluferli hafið á Versacold Atlas

Helstu atriði úr uppgjörinu:
Heildartekjur á þriðja ársfjórðungi námu 403,2 milljónum evra (3F 2007: 271,9
milljónir evra), sem er 48,3% tekjuaukning á milli ára.  Undirliggjandi vöxtur 
samstæðunnar er 4,3% á fjórðungnum.  Góður árangur náðist í flutningastarfsemi
félagsins en auk þess var rekstur Versacold Atlas í samræmi við áætlun. 

Starfsemi Eimskips skiptist í tvær meginstoðir; flutningastarfsemi
(sjóflutningar og tengdir flutningar) og hinsvegar rekstur kæli- og
frystigeymslna. Helstu atriði úr uppgjöri þriðja ársfjórðungs eru
eftirfarandi: 

• Rekstrartekjur af flutningastarfsemi námu 160,5 milljónum evra á 3F og tekjur
af rekstri kæli- og frystigeymslna voru  242,7 milljónir evra á fjórðungnum. 
• Rekstrargjöld námu 391,4 milljónum evra (3F 2007: 260,7 milljónir evra) og
jukust því um 50,1% frá fyrra ári. 
• Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) nam 41,1
milljónum evra, eða 10,2%  í hlutfalli af tekjum. EBITDA jókst um 52.2% frá
fyrra ári þar sem hún var 27.0 milljónir evra, eða 9,9% framlegð. 
• Heildarfjármagnskostnaður er 33,2 milljónir evra á 3F, þar af nemur gengistap
um 3,1 milljónum evra. 
• Tap eftir skatta var 19,9 milljón evra á 3F samanborið við 14,1 milljóna evra
hagnað á 3F 2007. 
• Samkomulag var gert við tvo af fyrrum eigendum Innovate um skil á hlutabréfum
og um 55 milljónir hluta komust í eigu Eimskips. 
• Formlegt söluferli á Versacold Atlas er hafið undir stjórn kanadískra banka.

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, um uppgjörið:
„Flutningastarfsemi Eimskips skilar áfram viðunandi árangri og er í samræmi við
okkar áætlanir. Fjármagnsliðir halda hinsvegar áfram að hafa umtalsverð áhrif á
afkomu félagsins en yfirlýst markmið okkar er að lækka skuldir samstæðunnar.
Auk þess er unnið að ýmsum hagræðingarverkefnum innan félagsins til að bregðast
við ytri aðstæðum þar sem búast má við samdrætti í flutningastarfsemi. 

Lykiláhersla verður lögð á endurskipulagningu félagsins og markmið okkar er að
eiginfjárhlutfall félagsins verði 25% og í því samhengi er formlegt söluferli
hafið á Versacold Atlas í samstarfi við kanadíska banka.“

Attachments

reikningur.pdf 3f islenska.pdf