• Tap Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. október 2007 til 30. september 2008 nam kr. 366 m.kr. en hagnaðurinn á tímabilinu 1. október 2006 til 30. september 2007 nam 282 m.kr. Tap Spalar ehf eftir skatta á fjórða ársfjórðungi félagsins sem er 1. júlí 2008 til 30. september 2008 nam 47 m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 112 m.kr. Reikningsár Spalar er 1. október til 30. september ár hvert. Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. • Veggjald ársins nam 979 m.kr. til samanburðar við 1.040 m.kr. árið áður sem er 5,8% lækkun. • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrir árið 2008 nam 352 m.kr. og hækkar um rúmar 117 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 235 m.kr. Skýrist þessi hækkun fyrst og fremst vegna gjaldfærðs rannsóknarkostnaðs vegna nýrra gangna samtals 103 m.kr. á árinu 2008. • Afskriftir á rekstrarárinu 2008 námu samtals 401 m. kr. og hækka á milli ára um 75%. • Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur hækka verulega á milli ára eða um 457 m. kr. • Skuldir Spalar ehf lækka úr 4.405 m.kr. þann 30. september 2007 í 4.361 m.kr. þann 30. september 2008. Um uppgjörið Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu að mestu leyti í takt við áætlanir félagsins. Hins vegar var jafnmikil hækkun reikningslegra gjaldfærslna vegna hækkunar lána út af vísitöluhækkunum og gengisbreytingum ekki fyrirséð. Tímabilið frá 1. október 2007 til 30. september 2008 er tíunda heila fjárhagsárið félagsins. Á þessu tímabili fóru 2.007 þúsund ökutæki um göngin, sem greiddu veggjald sem er um 0,3% aukning frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi samsvarar því um 5.484 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern. Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin fara lækkandi, bæði að nafnverði og raunvirði. Skýringin er einkum sú að fleiri og fleiri viðskiptavinir nýta sér afsláttarmöguleika og veggjaldið hefur lækkað talsvert síðustu misserin. ________________________________________________________________________________ Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910.