- NBI hf. verður viðurkenndur ráðgjafi (CA) á First North Iceland


OMX Nordic Exchange Iceland hf. hefur samþykkt að NBI hf. verði viðurkenndur
ráðgjafi (þ.e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Hlutverk CA felst
í að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir
og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru
til viðskipta á markaðnum. CA fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan
markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær
aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North. 

Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla
ákveðin skilyrði.  Þau helstu eru að CA þarf að: 
- vera lögaðili. 
- hafa nægilega marga starfsmenn. 
- tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri
  reynslu í  fjármálaþjónustu við fyrirtæki. 
- setja innri reglur um viðskipti með hlut í félögum sem þiggur þjónustu
  Certified Adviser. 
- hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga.

First North Iceland býður NBI hf. velkominn til starfa sem Certified Adviser.