Fréttatilkynning frá Byr sparisjóð - vegna starfsloka Ingólfs V. Guðmundssonar


Samkomulag hefur orðið um að Ingólfur V. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Byrs
verðbréfa, láti af störfum hjá fyrirtækinu frá og með deginum í dag. 
Samkomulagið er gert í fullri sátt á milli aðila. 

Ingólfi eru þökkuð góð störf hjá Byr.

Mjöll Flosadóttir sem er forstöðumaður innri endurskoðunar hjá Byr mun
tímabundið stýra Byr verðbréfum og á sama tíma mun Björn Steinar Pálmason
tímabundið stýra Innri endurskoðun Byrs.