Containerships útvíkkar starfsemi til Miðjarðarhafsins


Containerships í Finnlandi sem að hluta til er í eigu Eimskip hefur yfirtekið
rekstur á fyrirtækinu Contaz Line sem er lítið skipafélag með starfsemi í
Miðjarðarhafinu. Yfirtakan hefur ekki nein bein fjárhagsleg áhrif á  móðurfélag
Eimskip en vegna eignarhalds á Containerships er rekstur þess félags að fullu
aðskilinn frá rekstri Eimskip.