Sparisjóður Mýrasýslu hefur breytt hluta skulda hjá AFL - sparisjóði og Sparisjóði Ólafsfjarðar í stofnfé. Um er að ræða stofnfjáraukningu í AFL - sparisjóði að fjárhæð 500mkr. og hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar að fjárhæð 330mkr. Með þessu er búið að koma eiginfjárstöðu þessara tveggja sparisjóða í gott horf og tryggja áframhaldandi starfsemi sjóðanna. Ofangreindir sjóðir eru dótturfélög Sparisjóðs Mýrasýslu. Frekari upplýsingar veitir Sparisjóðsstjóri, Bernhard Þór Bernhardsson, bernhard@spm.is
- Sparisjóður Mýrasýslu hefur breytt hluta skulda hjá AFL - sparisjóði og Sparisjóði Ólafsfjarðar í stofnfé
| Source: Sparisjóður Mýrasýslu