- Meint brot þriggja fyrrverandi starfsmanna


Askar Capital hefur sent tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins um meint brot
þriggja fyrrverandi starfsmanna á lögum og verklagsreglum bankans. Brotin varða
starfsemi í eigin félagi starfsmannanna án vitneskju bankans og tengjast
fjármagnsflutningum f.h. þriðja aðila á tímabilinu frá desember 2008 til mars
2009. Hin meintu brot komu upp við eftirlit regluvarðar.