Kögun ehf er útgefandi skuldabréfaflokkanna KOGN 03 1 og KOGN 04 1. Vaxtagjalddagi vegna KOGN 04 1 er 1. október 2009 en gjalddagi vaxta og afborgunar vegna KOGN 03 1 er 22. desember 2009. Í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu Teymis hf. hefur stjórn Kögunar ehf. hafið viðræður við lánardrottna félagsins. Telur stjórnin líklegt að niðurstöður framangreindra viðræðna muni liggja fyrir áður en til framangreindra gjalddaga kemur. Nánari upplýsingar veitir Bjarni Birgisson forstjóri Kögunar ehf. í síma 898 2006
Upplýsingar fyrir skuldabréfaeigendur Kögunar ehf.
| Source: Kögun hf.