Leiðrétting - Kynning Straums fyrir lánveitendur - Frétt birt 2009-04-16 18:18:03


Leiðrétting: Nýtt viðhengi.

Þann 9. mars s.l. skipaði Fjármálaeftirlitið skilanefnd yfir Straumi-Burðarási
fjárfestingabanka hf. (Straumur/bankinn). Þann 19. mars veitti Héraðsdómur
Reykjavíkur bankanum heimild til greiðslustöðvunar, heimildin gildir til 11.
júní n.k. 

Straumur leitar nú leiða til að koma nýrri skipan á fjármál félagsins og á í
viðræðum við lánveitendur um framtíð þess. 

Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um flutning innlána Straums til Íslandsbanka hf.
fól í sér að Straumur gaf út veðskuldabréf til Íslandsbanka hf. sem endurgjald
fyrir hinar yfirteknu innlánsskuldbindingar. 

Meðfylgjandi er kynning á stöðu félagsins sem kynnt verður lánveitendum
Straums. 

Rétt er að taka fram að umrædd kynning er ekki á vegum aðstoðarmanns bankans í
greiðslustöðvun og ekki er um endurskoðaðan reikning eða afkomutölur að ræða. 

Nánari upplýsingar veitir:

Georg Andersen
Forstöðumaður Samskiptasviðs
S: +354 585 6707
georg@straumur.com
www.straumur.com

Attachments

straumur_17april.pdf