Eins og greint var frá í fréttatilkynningu sem birtist í Nasdaq OMX Iceland þann 6. apríl síðastliðinn hugðist stjórn SPM sækja um greiðslustöðvun fyrir sparisjóðinn og ganga til nauðasamninga á grundvelli samkomulags við helstu lánardrottna sjóðsins. Umsókn um greiðslustöðvun var lögð fram hjá Héraðsdómi Vesturlands og hefur verið samþykkt. Greiðslustöðvunin gildir í þrjár vikur. Umsjónarmaður í greiðslustöðvun er Sigurður Arnalds hæstarréttarlögmaður. Lánardrottnum verða kynnt drög að nauðasamning fyrir SPM á næstu dögum. Ef nauðasamningar nást er stefnt að sameiningu SPM og Nýja Kaupþings banka hf.