- Ársreikningur 2008


Akureyrarbær stendur traustum fótum í erfiðu árferði

Rekstur Akureyrarbæjar hefur ekki farið varhluta af erfiðu ástandi í
efnahagsmálum þjóðarinnar. Reksturinn gekk vel á síðasta ári en hátt gengi og
erfitt efnahagsumhverfi setja mark sitt á fjármagnsliði. Ársreikningar fyrir
árið 2008 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum
skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann
til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 5. og 19. maí nk. 

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, 
Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega
sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en
rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin
eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar,
Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar,
Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf,
Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og
Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar. 

Grunnrekstur A- og B hluta Akureyrarbæjar, fyrir fjármagnsliði, gekk í
meginatriðum vel og að mestu í samræmi við áætlanir og sjóðsstreymi var ágætt.
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 359 millj. króna en
rekstrarniðurstaðan var neikvæð um 5.065 millj. kr. eftir fjármagnsliði sem
skýrist nær alfarið af reiknuðum liðum, vegna veikingar íslensku krónunnar og
verðlagsbreytinga. 

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 1.217 millj.kr. og
handbært fé frá rekstri 1.432 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals
2.895 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals 3.186 millj.kr. Afborgun
langtímalána nam 581 millj.kr. Ný langtímalán námu 4.027 millj.kr. en
Akureyrarbær lauk að mestu fjármögnun ársins 2009 í desember 2008. Hækkun á
handbæru fé á árinu nam 1.723 millj.kr. og  nam handbært fé sveitarfélagsins í
árslok 3.455,5 millj.kr. 

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 5.962.434
þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.535 sem er aukning um 33
frá fyrra ári. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við
rekstrartekjur þess voru 55,4%. Annar rekstrarkostnaður var 34,9% af
rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 383 þús.kr. á hvern íbúa en
tekjur samtals 798 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2007 voru skatttekjurnar 356
þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 763 þús.kr. 
 
Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 27.705
millj.kr., þar af eru veltufjármunir 4.984 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins
með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi 23.047 millj.kr.,
þar af eru skammtímaskuldir 5.069 millj.kr. Veltufjárhlutfallið er 0,98 í
árslok, en var 1,11 árið áður. Bókfært eigið fé nemur 4.659 millj.kr í árslok
en nam árið áður 9.720 millj. kr. 

Helstu niðurstöðutölur úr rekstrarreikningi og sjóðstreymisyfirliti
samstæðureiknings  Akureyrarbæjar árið 2008 má sjá í eftirfarandi töflu: Sjá
viðhengi.



Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, Fjármálastjóri, í síma 460 1000

Attachments

akureyrarbr 2008.pdf frettatilk.pdf