Eins og greint var frá í fréttatilkynningu sem birtist í Nasdaq OMX Iceland þann 27. apríl síðastliðinn fékk SPM greiðslustöðvun í þrjár vikur. Í dag var greiðslustöðvunin framlengd til 30. Júní. Tilgangur greiðslustöðvunarinnar er undirbúa nauðasamninga við lánadrottna á grundvelli samkomulags við helstu lánadrotta sjóðsins. Umsjónarmaður í greiðslustöðvun er Sigurður Arnalds hæstarréttarlögmaður. Lánardrottnum verða kynnt drög að nauðasamning fyrir SPM á næstu dögum. Ef nauðasamningar nást er stefnt að sameiningu SPM og Nýja Kaupþings banka hf.