Hluthafafundur var haldinn hjá Bakkavör Group hf. í dag föstudaginn 26. mars 2010. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar: 1. Tillaga stjórnar félagsins um afskráningu félagsins af Nasdaq OMX Iceland og breytingu félagsins í einkahlutafélag að fenginni heimild til afskráningar. Tillagan er svohljóðandi: „Hluthafafundur í Bakkavör Group hf., haldinn 26. mars 2010, samþykkir að óska eftir afskráningu félagsins af Nasdaq OMX Iceland. Að fenginni heimild til afskráningar breytist félagið í einkahlutafélag í samræmi við 132. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og taka þá gildi samþykktir einkahlutafélags sem afgreiddar verða á þessum fundi. Þangað til starfar félagið á grundvelli núgildandi samþykkta.” 2. Tillaga að nýjum samþykktum fyrir félagið sem taka gildi þegar félagið breytist í einkahlutafélag og gera ráð fyrir þremur hlutaflokkum, flokkum A, B, og C. 3. Tillaga um starfskjarastefnu sem tekur gildi þegar félagið breytist í einkahlutafélag.
Niðurstöður hluthafafundar 26. mars 2010
| Source: Bakkavör Group hf.