MIKILL VIÐSNÚNINGUR Í REKSTRI OG AFKOMU - ENDURFJÁRMÖGNUN LOKIÐ - GÓÐAR HORFUR • Mikil aukning EBITDA* hagnaðar, eða 24,6%, en hann nam 27,2 milljörðum króna (135,1 m.punda) á árinu 2009 og var 1 milljarði króna (5,1 m.punda) umfram markmið félagsins • Stórbætt EBITDA* hlutfall á árinu, 8,2% samanborið við 6,7% árið 2008 - hækkaði enn frekar á fjórða ársfjórðungi í 8,7% • Verulegur viðsnúningur í afkomu félagsins á árinu sem nemur 28,7 milljörðum króna (142,4 m.punda), en tap félagsins á árinu nam 2,4 milljörðum króna (11,8 m.punda) samanborið við 31,1 milljarðs króna tap (154,2 m.punda) árið 2008 • Frjálst fjárflæði styrktist verulega eða um 20,6 milljarða króna (102,3 m.punda) á árinu og nam 13,8 milljörðum króna (68,3 m.punda) • Hagræðingaraðgerðir sem ráðist var í 2008 og 2009 hafa skilað aukinni arðsemi félagsins - sala á ferskum tilbúnum matvælum félagsins í Bretlandi jókst sérlega mikið eða um 5% • Félagið gerir ráð fyrir að EBITDA hagnaður muni nema um 5,8 milljörðum króna (29 m.punda) á fyrsta ársfjórðungi 2010 sem er 53% aukning frá fyrra ári og að EBITDA hagnaður muni nema 29,2 milljörðum króna (145 m.punda) á ársgrundvelli • Félagið hefur nú verið endurfjármagnað að fullu Ágúst Guðmundsson, forstjóri: Mikill viðsnúningur hefur orðið í rekstri og afkomu félagsins eins og uppgjör ársins 2009 sýnir. Sala hefur aukist verulega á lykilmarkaði félagsins með fersk tilbúin matvæli í Bretlandi, auk þess sem sjóðstreymi hefur styrkst á ný. Þær aðgerðir sem félagið hefur ráðist í á síðastliðnum tveimur árum hafa skilað góðum árangri og erum við bjartsýn á framtíðarhorfur félagsins. Þá hefur félagið verið endurfjármagnað að fullu í kjölfar samþykktar nauðasamnings þess en hann gengur út á framlengingu gjalddaga lána til ársins 2014 og útgáfu nýrra hlutaflokka sem styrkja efnahagsreikning félagsins. Samningurinn kemur í kjölfar endurfjármögnunar á rekstrarfélögum samstæðunnar sem gengið var frá snemma á síðasta ári og tryggir fjárhagslegan stöðugleika félagsins. Frekari upplýsingar veita: Ágúst Guðmundsson, forstjóri Sími: 550 9700 Richard Howes, fjármálastjóri Sími: 550 9700 Ásdís Ýr Pétursdóttir, samskiptasvið Sími: 550 9715 *EBITDA að undanskildum einskiptiskostnaði vegna hagræðingar ** Sala leiðrétt m.t.t. framleiðslu sem var afsalað vegna hagræðingar