Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. í söluferli


Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans (NBI hf.) hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf.
sem á og rekur verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi. 

Seljandi hlutafjárins er Fasteignafélag Íslands ehf. sem er í eigu Regins ehf. 

Stefnt er að lokum söluferlisins fyrir lok júlí 2010.