• Tap Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. október 2009 til 31. mars 2010 nam kr. 40,6 m.kr. en tap á tímabilinu 1. október 2008 til 31. mars 2009 nam 233 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. janúar 2010 til 31. mars 2010 nam 13,5 m.kr. Á sama tíma árið á undan nam tap félagsins 88 m.kr. Reikningsár Spalar er 1. október til 30. september ár hvert. Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. • Veggjald nam 356 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 344 m.kr. árið áður sem er 3,5% hækkun. • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 147 m.kr. og hækkar um tæpar 18 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 129 m.kr Hækkunin liggur að stærstum hluta í aukningu launkostnaðar og aðkeyptrar ráðgjafaþjónustu og afskrifaðra viðskiptakrafna vegna gjaldþrota. • Afskriftir á tímabilinu námu samtals 57 m. kr. og lækka á milli ára um 50,9%, sem skýrist af breytingu á reikningshaldslegu mati á líftíma ganganna. • Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli tímabila um 213 m. kr. • Skuldir Spalar ehf hækka úr 4.413 m.kr. þann 30. september 2009 í 4.615 m.kr. þann 31. mars 2010. Um uppgjörið Gylfi Þórðarson, framkæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu nokkurn veginn í samræmi við áætlanir. Vegna mikillar verðbólgu árin 2008 og 2009 var nauðsynlegt að hækka gjaldskrá félagsins um ca. 12,5% 1. febrúar 2010. Þar sem umferð og tekjur eru umtalsvert meiri seinni hluta rekstrarársins er útlit fyrir mjög ásættanlega niðurstöðu fyrir rekstrarárið í heild. Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910.