Fréttatilkynning - Afkoma Eyris Invest ehf. H1 2010 Hagnaður að fjárhæð 3,2 milljónir evra var af rekstri Eyris Invest á fyrri hluta ársins 2010. Eigið fé 30. júní 2010 er 160 milljónir evra. • Eigið fé er 160 milljónir evra og eiginfjárhlutfall 38%. • Laust fé og aðrar bankainnistæður nema 34 milljónum evra. • Kjölfestueignarhlutir Eyris í Marel og Össuri eru færðir samkvæmt hlutdeildaraðferð. Bæði félögin eru skráð á Nasdaq OMX Nordic. Ef stuðst er við markaðsvirði eigna í stað hlutdeildaraðferðar reiknast eiginfjárhlutfall nú rétt rúmlega 40%. • Horfur í rekstri Marels, Össurar og Stork eru góðar. Félögin eru með sterkt sjóðstreymi, trausta fjárhagsstöðu og hafa einnig styrkt samkeppnisstöðu sína enn frekar undanfarin ár. Fjármögnun þeirra eru í takt við alþjóðleg viðmið og eru nettó skuldir þeirra á bilinu 2-4x EBITDA. Starfrækslumynt Eyris Invest frá 1. janúar 2009 er evra. Kjölfestueignir Eyris Invest eru í þremur leiðandi iðnfyrirtækjum; Marel, Össur og Stork. Að auki fjárfestir Eyrir Invest í ýmsum sprotafyrirtækjum og styður þau til vaxtar. Eyrir Invest var stofnað 8. júní árið 2000 og fagnar því 10 ára afmæli sínu á árinu. Innra virði hlutabréfa reiknast í dag 15,9 evrucent á móti stofnverði 1,4 evrucent. Á sama tíma hefur MSCI heimsvísitala hlutabréfa að meðaltali lækkað um 5% árlega mælt í evrum, eða samtals um 41%. Árni Oddur Þórðarson, forstjóri: „Við erum ánægð með góðan rekstur hjá Marel, Össuri og Stork á fyrri hluta þessa árs. Stjórnendur og starfsmenn kjölfestueigna okkar hafa sýnt mikinn styrk og sveigjanleika á erfiðum tímum. Við erum þakklát fyrir það traust sem fjármálastofnanir og fjárfestar hafa sýnt okkur. Eyrir hefur ávallt lagt mikla áherslu á skýra stefnu, gagnsæi í rekstri og langtíma fjármögnun hvort sem um er að ræða hjá félaginu sjálfu eða hjá kjölfestueignum okkar. Marel, Össur og Stork hafa undanfarin ár skilað sterku sjóðstreymi án þess að draga úr fjárfestingum í rannsóknum og þróun og frekari markaðsaðgangi á heimsvísu. Með sterka markaðsstöðu á vaxandi mörkuðum og góða fjármögnun geta þau skapað mikið hluthafavirði á næstu árum.“ „Kaupa og styðja til vaxtar“ stefna Eyris Kjölfestueignir Eyris Invest eru 32% hlutur í Marel, 15% hlutur í Össur og 17% hlutur í hollenska iðnaðarfyrirtækinu Stork, sem stendur í dag á tveimur leggjum; Stork Technical Services og Fokker Aerospace. Eyrir hefur verið hluthafi í Marel og Össur síðan árið 2004 og í Stork síðan árið 2006. Félögin hafa á undanförnum árum þróast úr því að vera tæknilega fremst í það að vera jafnframt markaðsleiðandi, hvert á sínu sviði. Markaðsstaða og fjárhagsstyrkur fyrirtækjanna setur þau í góða stöðu til að skapa virði á næstu árum. Á árinu seldi Eyrir Invest 16,9 milljón hluti í Össuri, en er eftir sem áður annar stærsti hluthafi félagsins með ríflega 15% hlut. Að auki fjárfestir Eyrir Invest í ýmsum sprotafyrirtækjum og styður þau til vaxtar. Á árinu seldi Eyrir 25% hlut sinn í Caldiris til Sabre Holdings sem keypti öll útgefin hlutabréf í Caldiris. Calidris þróar og markaðssetur hugbúnað til tekjustýringar hjá flugfélögum víða um heim. Marel og Össur eru stærstu skráðu félögin á Íslandi Marel og Össur eru stærstu skráðu félögin á Nasdaq OMX Íslandi auk þess sem hlutabréf Össurar eru skráð í Kaupmannahöfn. Félögin eru einnig meðal stærstu útflutningsfyrirtækja á landinu. • Hlutabréfaverð í Marel hefur hækkað um 72% á árinu, reiknað í evrum. Á síðastliðnu ári réðst Marel í hlutabréfaútgáfur sem hafa til viðbótar við gott sjóðstreymi og sölu á eignum utan kjarnastarfsemi styrkt fjárhagsstöðu félagsins verulega. Marel hefur einnig á árinu aukið sölu og skilað góðum rekstrarhagnaði. • Össur tvíhliða skráði hlutabréf sín á Nasdaq OMX Kaupmannahöfn í þriðja ársfjórðungi 2009. Hlutabréfaverð Össurar hefur hækkað um 36% á árinu reiknað í bandaríkjadal. Össur hefur á árinu skilað söluaukningu og góðri afkomu. Eignarhlutir Eyris Invest í Marel og Össuri eru færðir samkvæmt hlutdeildaraðferð. Ef stuðst er við markaðsvirði eigna í stað hlutdeildaraðferðar reiknast eiginfjárhlutfall nú rétt rúmlega 40% samanborið við 38% í árshlutauppgjöri Eyris þann 30. júni 2010. Horfur Áfram er búist er við vexti umfram hagvöxt í þeim atvinnugreinum sem kjölfestueignir Eyris eru staðsettar. Markaðsstaða og fjárhagsstyrkur fyrirtækjanna setur þau í góða stöðu til að njóta þess vaxtar. Frekari upplýsingar veitir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest ehf. Sími: 525-0200 www.eyrir.is