Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2011


Jákvæð rekstrarafkoma

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2011 var lögð fram í bæjarstjórn
Akureyrar í dag. Rekstarafkoma A- og B hluta er áætluð jákvæð um 146,3
milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. 

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar,
Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega
sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en
rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin
eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar,
Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar,
Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf.,
Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og
Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar. 

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema
1.810,3 millj.kr. og handbært fé frá rekstri 1.794,3 millj.kr.
Fjárfestingarhreyfingar nema samtals 1.716,3 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar
munu nema samtals 307,4 millj.kr. Afborgun langtímalána er áætlað að nemi
1.174,6 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 1.494 millj.kr. Handbært fé
sveitarfélagsins í árslok er áætlað að nemi 1.656,5 millj.kr. 

Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 
8.148.8 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við
rekstrartekjur þess, eru áætluð 53,19%. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður
30,4% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins ásamt jöfnunarsjóði eru
áætlaðar 399 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 855 þús.kr. á hvern íbúa.
Árið 2010 eru skatttekjurnar ásamt jöfnunarsjóði áætlaðar 407 þús.kr. á hvern
íbúa og heildartekjurnar 861 þús.kr. 

Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12. 2011 verði
bókfærðar á 36.360 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 3.209 millj.kr. Skuldir
sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nemi samkvæmt efnahagsreikningi
22.623 millj.kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.460 millj.kr. Áætlað er að
heildareignir á hvern íbúa muni nema 2.024 þús. kr. og heildarskuldir 1.196
þús. kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 0,93 í árslok, en er áætlað 0,87 í árlok
2010. Bókfært eigið fé er áætlað að nemi 13.737 millj.kr í árslok 2011.
Eiginfjárhlutfall í árslok er áætlað að nemi 38%. 

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í
sveitarstjórn og verður hún til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar í dag, 7.
desember, og við síðari umræðu þann 21. desember nk. 

Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir
árið 2011, samstæðan ásamt öllum fyrirtækjum bæjarins sem undir áætlunina
falla. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2011 er birt í frumvarpinu áætluð
útkomuspá fyrir árið 2010. 


Akureyri, 7. desember 2010

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, fjármálastjóri, í síma 460 1000.

Attachments

fjarhagsatlun akureyrar 2011 - fyrri umra neti.pdf