Afdrif tillögu Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn


 

Þann 10. desember 2010 setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda sinna og eigenda fjármálagerninga útgefnum af Reykjaneshöfn (hér eftir „kröfuhafar“) um að gjaldföllnum greiðslum og dráttarvöxtum yrði bætt við höfuðstól og samningum og fjármálagerningum skilmálabreytt þannig að næsta greiðsla yrði ekki fyrir 1. maí 2011 ásamt því að ýmsar kvaðir voru settar á Reykjaneshöfn á þessum tíma sbr. nánar efni tillögunnar.

Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru samtals tuttugu talsins. Tillagan þarf samþykki allra kröfuhafa nema Lánasjóðs Sveitarfélaga til að ná fram að ganga, eða samtals nítján kröfuhafa. Af þessum nítján kröfuhöfum hafa allir samþykkt tillöguna. Telst því tillagan samþykkt.

Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.