Ársreikningur Jeratúns árið 2010


Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á reikningsárinu.

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2010 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 31. mars 2011.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Tap félagsins á árinu 2010 var 4.922 þús. kr. og í lok þess var eigið fé neikvætt um sem nam 41.380 þús. kr. samkvæmt ársreikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Stjórnin mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 21 milljón.

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með ábendingu.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 493,8 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru kr. 52.480.416 á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

 

Kristinn Jónasson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

 

 

 


Attachments

Jeratun 2010.pdf lykiltolur Jeratun v  2010.pdf