Sláturfélag Suðurlands skráð á First North Iceland


Hlutabréf Sláturfélags Suðurlands svf. verða skráð á First North Iceland fimmtudaginn 14. júlí næst komandi.  Hlutabréfin voru áður skráð á Tilboðsmarkaðnum.

Útgefnir hlutir í Sláturfélagi Suðurlands svf. eru 200.000.000, hver hlutur er ISK 1 að nafnverði.

Auðkenni Sláturfélags Suðurlands í viðskiptakerfi NASDAQ OMX Iceland verður óbreytt SFS B.
ISIN-númer IS0000001311.
Orderbook ID 29678.

Atvinnugreinaflokkun skv. GICS staðli helst óbreytt:
GICS númer og nafn
Undirgrein:         30202030   Packaged Foods & Meats
Atvinnugrein:         202030   Food Products
Atvinnugreinahópur:     2030   Food, Beverage & Tobacco
Atvinnugeiri:             30   Consumer Staples