Árshlutareikningur jan. - júní 2011


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á síðasta reikningsári.

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2011 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 30. ágúst 2011.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Tap félagsins á fyrrihluta ársins 2011 var 11.623 þús. kr. og í lok þess var eigið fé neikvætt um sem nam 32.003 þús. kr. samkvæmt árshlutareikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Á hluthafafundi í félaginu var hlutafé aukið um 21 milljónir kr.

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með ábendingu.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok tímabilsins námu eftirstöðvar lána 483,5 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru kr. 54.490.596 á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

 

Kristinn Jónasson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.

 

 

 


Attachments