Samningur og viljayfirlýsing


Fréttatilkynning

16. desember 2011

 

Þann 11. nóvember s.l. undirrituðu Reykjanesbær og Ríkissjóður Íslands samning um sölu Reykjanesbæjar á landi og auðlindum á Reykjanesi til ríkissjóðs. Í samræmi við ákvæði sölusamnings frá 17. júlí 2009, þegar HS Orka seldi Reykjanesbæ þetta land og auðlind, þá voru þessi viðskipti nú háð samþykki HS Orku. HS Orka hefur nú gengið frá samningi við Reykjanesbæ og undirritað viljayfirlýsingu við ríkissjóð sem tryggja að hagsmunir fyrirtækisins skaðist ekki vegna þessara viðskipta.

Málsaðilar munu nú hefja samningaviðræður um fyrirkomulag á nýtingu jarðhitaréttinda á umræddu svæði og er stefnt að því að samningum verði lokið eigi síðar en 1. júlí 2012.

 

Júlíus Jónsson,

forstjóri,