Eyrir Invest ehf. hefur í dag ákveðið að auka hlutafé félagsins um tæp 10% með sölu á 101 milljón nýrra hluta á genginu 24,25. Heildarútgefið hlutafé eftir aukningu er 1.108.681.220 hlutir að nafnverði, hver hlutur jafngildir 1 krónu. Kaupandi hins nýútgefna hlutafjár er Lífeyrissjóður verzlunarmanna.
Með útgáfu nýs hlutafjár eykst fjárfestingargeta Eyris Invest. Samhliða hlutafjárútgáfunni hefur Eyrir stofnað sjálfstætt félag um fjárfestingar í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum; Eyrir sprotar slhf. Eyrir sprotar munu legga megináherslu á að styðja efnileg útflutningsfyrirtæki til vaxtar og virðissköpunar.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyrir Invest:
„Við fögnum innkomu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í hluthafahóp Eyris Invest. Eyrir styður iðnfyrirtæki til vaxtar á alþjóðlegum mörkuðum. Eyrir er kjölfestufjárfestir í Marel með 36% hlut auk þess að eiga 17% hlut í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Eyrir hefur einnig stutt önnur framúrskarandi fyrirtæki á borð við Össur til vaxtar á síðustu árum. Með auknum fjárhagsstyrk og stofnun Eyris sprota skapast ný tækifæri til áframhaldandi fjárfestinga í efnilegum fyrirtækjum.“
Innkoma Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er mikilvægt skref til að breikka og stækka hluthafahóp Eyris og þar með styrkja verðmyndun og auka seljanleika á hlutabréfum félagsins. Stofnendur og kjölfestueigendur Eyris eru Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson sem fara með samtals rúmlega 34% eignarhlut eftir hlutafjáraukninguna.
Samhliða innkomu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna liggur fyrir tillaga frá stjórn Eyris til hluthafafundar um að allar hömlur á meðferð hluta verði afnumdar. Hlutafjáraukningin er háð því skilyrði að meðferð hluta sé frjáls. Hluthafafundur hefur verið boðaður 10. janúar 2012.
Um Eyrir Invest
Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Kjölfestueignir Eyris eru 36% hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu sem nú verður gert hærra undir höfði í gegnum félagið Eyrir sprotar slhf. „Kaupa og styðja til vaxtar“ stefna Eyris hefur skilað góðri ávöxtun frá stofnun félagsins árið 2000