Eyrir Invest ehf. – Breytingar á samþykktum félagsins.


Á aukahluthafafundi Eyris Invest ehf. sem haldinn var í dag, 10. janúar 2012, voru samþykktar breytingar á samþykktum félagsins.  Samþykkt var að afnema ákvæði um hömlur á meðferð hluta í félaginu.  Jafnframt var ákveðið að taka upp ákvæði um að ársreikningar og hálfsársreikningar félagsins skyldu vera öllum aðgengilegir.

Þannig hefur skilyrði fyrir hækkun hlutafjár sem tilkynnt var um 30. desember 2011 verið uppfyllt.    Heildarútgefið hlutafé eftir aukningu er 1.108.681.220 hlutir að nafn­verði, hver hlutur jafngildir 1 krónu. Kaupandi hins nýútgefna hlutafjár er Lífeyrissjóður verzlunar­manna, kaupverð á hlut var 24,25.

Um Eyri Invest

Eyrir er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggur ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Kjölfestueignir Eyris eru 36% hlutur í Marel og 17% hlutur í Stork BV sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Á síðustu árum hefur Eyrir aukið vægi sprotafjárfestinga í eignasafni sínu sem nú verður gert hærra undir höfði í gegnum félagið Eyrir sprotar slhf. „Kaupa og styðja til vaxtar“ stefna Eyris hefur skilað góðri ávöxtun frá stofnun félagsins árið 2000

www.eyrir.is


Attachments